kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu styðjum við þessa tillögu um að fresta þessu um eitt ár þó að eina vitið sé að draga málið algjörlega til baka eða hafna því alfarið. En þetta gefur þá örlítið meiri fyrirsjáanleika og tækifæri til undirbúnings af því að það er töluverður munur á því að vita að eitthvert frumvarp komi og hafa það í umræðunni eða hafa það samþykkt og fullbúið í eitt ár. Það er bara sitthvor hluturinn. Það er enginn fyrirsjáanleiki í því að klára þetta hér rétt fyrir gildistöku. Ég get ekki séð hvernig það á að auka óvissuna að fresta þessu um ár, sem ég tel vera algjört neyðarúrræði, að fresta þessu. Það á að hafna þessu.