kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Þetta er breytingartillaga af sama meiði og sú fyrri sem var felld hér. En bara vegna orða hv. þm. Pawels Bartoszeks, sem ætlar að halda því fram að það að fresta gildistöku málsins auki óvissu í málinu, vil ég koma hingað upp og mótmæla því harðlega. Fyrirtæki í landinu geta ekki unnið eftir einhverjum áformum ríkisstjórnar á hverjum tíma. Þau geta ekki unnið eftir drögum sem liggja í samráðsgáttum og þau vinna svo sannarlega ekki eftir umræðum stjórnmálamanna á hverjum tíma. Þau vinna samkvæmt lögum sem sett eru á Alþingi. Þessi lög, ef þau verða samþykkt í þessari viku, taka gildi eftir nokkra daga. Það er fyrirsjáanleikinn sem fyrirtækin hafa. Það er fyrirvarinn sem þau hafa til að starfa eftir. Það er algerlega óásættanlegt.