157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:27]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við erum að ljúka atkvæðagreiðslu um þennan kílómetraskatt. Ég myndi helst vilja að nafnið á þessu væri kílómetraskattur, ekki kílómetragjald. Mér býður í grun, frú forseti, að þessi skattur verði afskaplega óvinsæll. Menn munu í komandi jólaboðum hafa eitthvað til að tala um, þeir munu tala um þennan skatt, þetta gjald, alla þá flækju sem hann hefur í för með sér fyrir venjulegt fólk, frú forseti. Það verður nóg um að ræða í jólaboðunum.