157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:01]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er um að ræða aðgerð sem fór af stað í Covid-faraldrinum og líf þeirrar aðgerðar er framlengt hér af Flokki fólksins sem skreytir sig með þessu eins og hér sé um einhvern jólabónus að ræða. Þetta er nokkurra ára gamalt mál, Covid-aðgerð. Þegar hæstv. ráðherra kemur fram í hjartnæmri útsendingu og segir við sína kjósendur að þetta muni koma fljótlega, það séu einhverjir vondir þingmenn hérna á þingi sem eru að reyna að tefja málið og koma í veg fyrir það, þá verður að hafa það hugfast að þetta mál kom hingað inn fyrir rúmum mánuði og er svo illa unnið að fjöldi, hundruð manna, eignamesta fólkið og tekjumesta fólkið er að fá stóran hluta af þessu. [Framíköll í þingsal.] Að svo stöddu get ég ekki stutt þetta mál. (Gripið fram í: Algjör þvæla.)

(Forseti (BHar): Forseti biður hv. þingmenn um gefa þeim þingmanni sem stendur í pontu orðið.)