almannatryggingar.
Frú forseti. Ég tel ástæðu til að leggja nokkur orð í belg hvað þetta mál varðar. Hér er enn eitt málið þar sem markmið ríkisstjórnarinnar tóna ekki við aðgerðirnar sjálfar. Um það hefur gagnrýni okkar á þetta frumvarp staðið, að það sé of víðtækt og greiðslurnar fari ekki til þess hóps sem þarf helst á fjármunum að halda. Það segir í greinargerð með frumvarpinu að greiðslurnar eigi að fara til 37.000 einstaklinga en ráðherrann heldur því fram að þær eigi að fara til efnaminnstu borgaranna. Það eru ekki bara við sem höfum verið að gagnrýna þetta í stjórnarandstöðunni heldur líka til að mynda Alþýðusambandið sem segir einmitt að þetta tóni ekki við yfirlýsingar stjórnarinnar um að lyfta tekjulægstu hópunum. Þessi almenna aðgerð er svo umfangsmikil að hún vekur upp spurningar um markvissa ráðstöfun almannafjár. Þess vegna held ég að það sé fullt tilefni til að endurskoða aðeins þetta kerfi. (Forseti hringir.) Það gafst ekki tími til þess núna sökum þess hve málið kom seint fyrir þingið. Fyrir því ber ráðherrann ábyrgð en það kom mánuði of seint. (Forseti hringir.) Sjálfstæðisflokkurinn mun sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.