157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:06]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég átti ekki von á að þurfa að koma tvisvar upp til að benda hv. þingmönnum á það að tölurnar sem hefur verið farið með hér eru gamlar, frá því í fyrra og eldri. Síðan þá hafa verið sett tekjuviðmið og samkvæmt þeim tölum sem er ítrekað verið að vísa í þá eru um 11 einstaklingar — ég er að koma og segja þetta aftur — 11 einstaklingar sem voru í eignamesta hópnum, 64 í hópnum fyrir neðan. Langflestir sem eru á örorku- og ellilífeyrisbótum eru ekki á góðum stað þegar kemur að afkomu. Kerfið okkar er ekki það fullþroskað lífeyriskerfi og því þarf fólk að fá þessar uppbætur frá Tryggingastofnun. Langflestir í þessum hópi þurfa á þessum greiðslum að halda og að hlusta á hér aftur og aftur rangfærslur um atriði sem snúa að eignamestu hópunum sem búið er að taka á í frumvarpinu með þessum tekjuviðmiðum er bara afskaplega dapurlegt. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )