157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:09]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er alveg skýrt í þessu máli að tekjuviðmiðin í eingreiðslunni þýða það að jólabónusinn, þessi eingreiðsla, fer til þeirra sem mesta aðstoð þurfa á að halda. Það er tekjuviðmið þarna. Það virðist vera að stjórnarandstaðan sé annaðhvort bara ekki í þeim raunveruleika sem við hin búum í eða þá að hún hlusti ekki á staðreyndir. Það er búið að endurtaka þetta aftur og aftur. Markmiðið með þessum pening er að eingreiðslan eigi að fara til tekjuminnsta hópsins, fátækasta hluta íslensks samfélags, en það virðist stjórnarandstaðan bara hreinlega ekki skilja. Ég hvet ykkur til þess að skoða staðreyndir þessa máls. Tekjuviðmiðin sjá til þess að þetta fari til tekjulægsta hópsins sem er hjá Tryggingastofnun. Það er grundvallaratriði í þessu máli. Ég hvet ykkur eindregið til að styðja þetta mál og ég vona að allir verði á grænu núna á eftir.