157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:10]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er auðvitað ekkert í lagi að réttmætri gagnrýni sé mætt af hæstv. ráðherra og hún kölluð falsfréttir. Það er ekkert í lagi við það og það er því miður ekki í fyrsta skipti. Það gerðist fyrr á árinu þegar ákveðinn fjölmiðill sat undir því án þess að það væri hægt að benda í neinu atriði á hvar það var haft rangt eftir. Hæstv. forsætisráðherra sagði sjálf í Kastljósi í sumar að öll gagnrýni stjórnarandstöðunnar varðandi veiðigjöldin væri í falsfréttastíl. Reyndar átti hagsmunagæslan bara að snúast um fjórar til fimm fjölskyldur í landinu. Það eru væntanlega fréttir fyrir Óðin Gestsson hjá fiskvinnslunni Íslandssögu á Suðureyri, sem er í eigu heimamanna, sem segir að dauðastríðið sé hafið og veiðigjöldin muni valda hægum dauðdaga. Eru það líka falsfréttir? Að sjálfsögðu ekki. Ég grátbið hæstv. ríkisstjórn að hætta að taka svona léttvægt á umræðu um falsfréttir. Það er ekki að sýna of mikinn kærleika, það er aðför að lýðræðislegri umræðu. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )