157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:14]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Það var nú ætlunin að gera grein fyrir atkvæði mínu við 1. gr. en ég ætla samt að koma hérna. Við erum hér að samþykkja eingreiðslu fyrir jól til tekjulægstu lífeyrisþeganna sem búa hér við einhverja mestu dýrtíð sem fyrirfinnst á byggðu bóli. Við höfum séð að þessi eingreiðsla skiptir verulegu máli fyrir fátækt fólk, eins og fram hefur komið, m.a. hjá Hjálparstofnun kirkjunnar sem segir að dregið hafi úr aðsókn eftir matarúthlutun vegna jólaeingreiðslunnar. Eingreiðsla í desember fyrir okkar verst setta fólk hefur alltaf verið hjartans mál Flokks fólksins. Það er með mikilli gleði og ánægju sem ég greiði þessu góða máli atkvæði mitt og segi að sjálfsögðu já.