157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:15]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði einmitt að gera grein fyrir atkvæði mínu áðan en ákvað að nýta tækifærið núna. Við erum að greiða atkvæði um mjög gott mál. Við erum að veita stuðning til fólksins sem þarf á mestum stuðningi að halda. Það er verið að forgangsraða þeim fjármunum til þeirra hópa sem eru lægst og verst settir af þessum hópi, sem er gríðarlega mikilvægt og hefði verið gott að hafa málefnalega umræðu um það hér. En málefnið er gríðarlega gott og mikilvægt til að styðja við öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru í hvað verstri stöðu.