viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Við erum að fjalla hérna um viðskiptakerfi ESB og það er gallað kerfi. Það er hannað fyrir stóran meginlandsmarkað, það er ekki hannað fyrir Ísland. Þetta kerfi leggst mun þyngra á Ísland heldur en önnur ríki og innleiðingin hefur þegar leitt til verri samkeppnisstöðu fyrir íslensk fyrirtæki. Ef ekki verður brugðist við er fyrirséð að áhrifin verði viðvarandi. Við erum eyríki norður í Atlantshafi, algerlega háð sjó- og loftflutningum með mikla fjarlægð frá helstu mörkuðum. Ólíkt meginlandi Evrópu hafa til að mynda farmflytjendur enga raunhæfa aðra kosti en flug og siglingar. Það er náttúrlega fáránlegt að við stöndum frammi fyrir því að þurfa að fara að kaupa losunarheimildir fyrir a.m.k. 11 milljarða. Ég vil segja þetta við þessa 2. umræðu: Þingflokkur Miðflokksins er frjálslyndur flokkur. [Hlátur í þingsal.] Sum okkar verðum á rauðu, greiðum atkvæði gegn frumvarpinu, og önnur munu sitja hjá.