viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp og taka til atkvæða frumvarp um einhvers konar lagfæringar á viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir; kerfi sem tekur mið af aðstæðum í Evrópu þar sem fólk ferðast á milli staða og er hvatt til að ferðast á milli staða í rafjárnbrautum. Við búum hér úti í Norður-Atlantshafi og þurfum að ferðast til annarra landa með flugi eða hugsanlega með skipum. Hagsmunagæsla fyrir Íslands hönd, hæstv. utanríkisráðherra. Þetta er hagsmunagæslan. Íslensk flugfélög, íslenskir atvinnurekendur, standa frammi fyrir því að borga milljarða í einhvers konar sektir til að kaupa einhverjar losunarheimildir til Evrópu. Við erum Evrópumeistarar ef ekki heimsmeistarar í nýtingu á endurnýjanlegri orku (Forseti hringir.) og við þurfum að fara að borga sektir til að ferðast á milli landa. Nei, frú forseti.