viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það sem er kostulegast við þetta mál er það að ég hef ekki heyrt nokkurn hv. þingmann útskýra hvað felst í þessu máli fyrir hagsmuni Íslands nákvæmlega. Ég hef spurt marga þingmenn, bæði úr stjórnarandstöðu og stjórnarmeirihluta, um hvað felist nákvæmlega í þessu máli. Ég hlýddi hér á umræður á, hvað var það, síðasta laugardagskvöld um þetta mál þar sem örfáir þingmenn tóku þátt. Það voru skemmtilegar umræður en þær voru svo sannarlega ekkert neitt sérstaklega upplýsandi um hvað felst í þessu máli. Það er, held ég, vandinn við þetta stóra ETS-losunarmál, að hér virðist enginn vita hvað snýr upp eða niður í þessu eða hvaða hagsmunir felast í þessu fyrir okkur. Ég mun sjálf sitja hjá í þessu máli hér við 2. umræðu en ég hef fullan skilning á því ef menn greiða þessu máli ekki atkvæði sitt og greiða atkvæði gegn því.