fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Til að rekja aðeins sögu þessa máls þá á það uppruna sinn í hruni bankakerfisins á alþjóðavísu 2007–2009. Upp úr því spratt Basel III-vinnan þar sem var reynt að minnka líkur á að eitthvað slíkt gæti gerst aftur með því að meta betur áhættu á einstaka lánum. Eins og við vitum þá var eitt af því sem gerðist í því ferli að fólk möndlaði saman einhverja lánabúta í einhverja pakka þannig að ekkert var gegnsætt og úr því varð kerfisáhætta. Í grunninn er þessi CRR III-vinna mikil viðleitni til þess að sporna við því. Það eru einhverjir hlutir sem hafa áhrif á okkur en ég vil benda þingheimi á það að Seðlabankinn hefur nýlega breytt fráviki þannig að eigið fé vegna framkvæmdalána fer úr 25% í 20% og þetta hefur jákvæð áhrif. Ég vil líka nefna að fjármálafyrirtækin styðja það að þetta verði innleitt.