fjármálafyrirtæki.
Virðulegur forseti. Seðlabankinn tók svolítið af okkur ómakið í efnahags- og viðskiptanefnd þegar hann breytti þessum viðmiðum sínum í 20% úr 25% eins og heimildin er fyrir í þessu ágæta frumvarpi. En ég vil bara benda á það, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason benti hér á, að þessi heimild er einungis til 2027. Því er afar brýnt að stjórnvöld noti þennan tíma til að í raun og veru meta og finna út úr því hvernig þessu verður best háttað hér heima. Ég hef líka áhyggjur af þeim sem eru með hærra veðsetningarhlutfall í sínum eignum. Þeir eru að koma verr út úr þessu þó að áhættuvogin sé lægri hjá þeim sem eru með lægri veðsetningu. En þar verðum við að stíga inn í, virðulegur forseti. Það verður að koma til móts við þann hóp með einhverjum ráðum.