almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Mig langar til að ítreka það sem kom fram hérna áðan: Það er mikilvægt að við séum að styðja við þá sem þurfa á því að halda. Það er mikilvægt að við séum að gera það núna í aðdraganda jólanna. Við vitum öll að allt hefur hækkað í okkar samfélagi og þetta skiptir máli. Ég tek undir það sem kom fram í orðum þingflokksformanns Framsóknar hér áðan, að sjálfsögðu þarf að horfa á ef einhverjir eru að fá greitt sem eiga miklar eignir, en það er eitthvað sem við þurfum þá að leiðrétta fyrir næsta ár. Við þurfum að passa upp á að þessi greiðsla skili sér til fólks núna fyrir jólin. Ég segi já.