breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Þetta er alveg rétt hjá hv. þingmanni. Menn þekkja þetta hugtak, höfrungahlaup, í kjarasamningum. Við sem erum a.m.k. í stjórnmálum og höfum það verkefni að móta stefnuna til framtíðar viljum ekki bara taka ákvarðanir byggðar á ástandinu nákvæmlega í dag heldur viljum við reyna að hafa einhvern fyrirsjáanleika og marka stefnu til framtíðar, ekki síst stjórnvöld á hverjum tíma. Hvaða ríkisstjórn sem situr á hverjum tíma hefur auðvitað goldið varhug við því að menn fari í höfrungahlaup í kjarasamningum og elti hver annan vegna þess að menn vita að launahækkanir sem ekki er innstæða fyrir í efnahagslífinu valda verðbólgu sem veldur síðan rýrnun kaupmáttar sem aftur kallar á kröfu um hækkun launa. Það er skynsamlegt af stjórnvöldum á hverjum tíma að halda þessu á lofti og líka skynsamlegt fyrir stjórnmálamenn í hvaða flokki sem er að reyna að tempra þetta, sjá til þess að svona víxlverkun eigi sér ekki stað.
Sömu lögmál eiga við um skattheimtu ríkisins. Ef ríkið gengur á undan með því fordæmi sem það er að gera hér, að hækka gjöld umfram t.d. verðbólgumarkmið Seðlabankans eða jafnvel bara hækka gjöld — það á auðvitað ekki að vera náttúrulögmál að krónutölugjöldin sem við þekkjum úr bandorminum þurfi að hækka. Það er ekki náttúrulögmál. Ríkið á að ganga á undan með góðu fordæmi og slaka á þessari gjaldheimtu og búa þannig til slaka í hagkerfinu þannig að það sé ekki þrýstingur á hækkun launa og þar fram eftir götunum. En því miður virðist þessi ríkisstjórn ekki bara ætla að halda í við eitthvert verðlag heldur er hún að hækka þessa krónuskatta umfram það sem ætti í raun að vera að gera ef miðað væri við verðbólgumarkmið Seðlabankans.