157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[19:16]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um alla þá skatta sem hæstv. ríkisstjórn mögulega dettur í hug að setja á, akkúrat núna á þeim tímum sem þrengir að. Það sem ég ætlaði að gera að umtalsefni mínu í þessari ræðu minni er að það var byrjað hér vaxtalækkunarferli og verðbólgan var farin að dragast saman út af því að fyrri stjórnvöld sýndu ábyrgð, höfðu hemil á útgjöldunum. Fyrri stjórnvöld kláruðu hér ábyrg fjármál eftir að það var búið að boða til kosninga. Þá kom fjárlagafrumvarp sem var aðhaldssamt og hafði áhrif til vaxtalækkunar. Oftast aukast útgjöldin í aðdraganda kosninga en þarna tókst að setja saman aðhaldssöm fjárlög. Þetta var allt til að fá mjúka lendingu í efnahagslífinu, verja heimilin, verja atvinnulífið til þess að ná samt verðbólgunni niður og kæla hagkerfið. Þetta virkaði og vaxtalækkunarferlið hófst, vaxtalækkunarferli sem núverandi ríkisstjórn er farin að telja inn í sinn árangur af því að hún hefur ekkert til þess að skreyta sig sjálf. Hún er farin að nýta árangur fyrri ríkisstjórnar til að upphefja sjálfa sig. Svo kom algjört frost um leið og allir fóru að sjá á spilin hjá núverandi ríkisstjórn, að hún gæti ekki hamið útgjaldavöxtinn þó að hún væri með fyrirheit um annað. Það birtist hér fjármálaáætlun og vaxtalækkunarferlið stoppaði um leið. Það fór allt í frost. Svo kom fjárlagafrumvarpið núna. Þetta eru ekkert nema útgjöld og aftur útgjöld og í staðinn þarf að fara dýpra í vasa landsmanna.

Vissulega er vaxtalækkunarferlið hafið aftur eftir langt stopp og verðbólgan. Af hverju er það? Er það hæstv. ríkisstjórn að þakka? Nei, það er út af þeim áföllum sem atvinnulífið lenti í. Það er ástæðan fyrir því að vextirnir eru byrjaðir að lækka aftur, af því að það kom hörð lending. Það kom því miður hörð lending sem atvinnulífið þurfti að taka á sig þegar þeir þurftu að loka framleiðslunni á Bakka, hægja á framleiðslunni hjá Elkem, bilun kom upp á Grundartanga hjá Norðuráli, aflasamdráttur, fall Play og því miður gætum við áfram talið. Það er þetta sem er að skapa það að vextirnir séu að lækka. Í þessum samdrætti, í þessum áföllum, þar sem atvinnuleysið hækkar og eykst, núna í aðdraganda jóla, fáum við alltaf fleiri og fleiri fréttir af því að atvinnuleysi aukist. Skattahækkanir sumarsins hjá ríkisstjórninni eru farnar að hafa afleiðingar um allt land. Fjárfestingargetan dregst saman. Það er samdráttur í öllum greinum tengdum sjávarútvegi og uppsagnir. Hvað er hæstv. ríkisstjórn þá að bjóða okkur upp á núna í aðdraganda jóla, í þessu ástandi þar sem atvinnuleysið eykst og það er erfitt rekstrarumhverfi hjá fyrirtækjunum? Jú, það eru hærri gjöld og auknir skattar, álögur, álögur, álögur. Þetta er jólagjöfin frá hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, þannig að nú þarf því miður atvinnulífið, sérstaklega í ferðaþjónustunni, að vera heima og fara yfir starfsmannalistana og sjá hvað þau geta fækkað starfsfólki mikið á nýju ári til að mæta skattahækkunum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin, þegar hún á að vera að gefa súrefni inn í atvinnulífið til þess að verja störfin, verja fólkið í landinu, verja heimilin — nei, þau minnka súrefnið. Þau draga úr súrefninu akkúrat þegar nálgast jól. Þetta eru skilaboðin, virðulegur forseti. Þetta eru skilaboðin sem fara um allt land: Fækka störfum hringinn í kringum landið, draga úr byggðastefnunni í þessu landi, draga kraftinn úr ferðaþjónustunni hringinn í kringum landið, sem er ein sterkasta byggðastefnan, og auka atvinnuleysið. Þetta eru skilaboðin. Við verðum að hætta þessum skattahækkunum. Við verðum að fella þær allar hér.