157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[19:21]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það er eiginlega farið að hljóma svolítið kómískt að hlusta á hæstv. ráðherra og ekki síst hæstv. forsætisráðherra þegar hún kemur fram víða og segist vera að boða nýja atvinnustefnu. Hæstv. ríkisstjórn er að boða nýja atvinnustefnu sem er, ég veit ekki hvort það er einhvers konar fimm ára stefna, fimm ára plan. Við vitum nú hvernig þau voru á sínum tíma og á sama tíma horfum við á þvílíkar skatta- og gjaldahækkanir á fyrirtækin í landinu og það er verið að boða nýja atvinnustefnu. Reyndar heyrist mér að þetta sé einhver atvinnustefna þar sem ríkisstjórnin ætlar að fara að velja þær atvinnugreinar sem eru henni þóknanlegar en aðrar eru ekki ríkisstjórninni þóknanlegar. Það hljómar svolítið kómískt að tala hér um nýja atvinnustefnu. Verðmætasköpunarhaust myndi ég segja fyrir mína parta að væri orð ársins, verðmætasköpunarhaust, sem er reyndar að verða verðmætasköpunarlaust, en það er annað mál.

En ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, hvort það hafi ekkert verið hlustað eða horft til þeirra umsagna sem komu hér inn. Ég ætla að fá að vitna í umsögn sem Bílaleigan Geysir sendi frá sér um hækkun vörugjalds af bifreiðum, með leyfi forseta:

„Áform stjórnvalda um hækkun vörugjalds á bifreiðar mun væntanlega skila sér í 15–25% hækkun á söluverði bíla. Að fara í svo bratta skattahækkun með svo stuttum fyrirvara í nafni orkuskipta er algjör þversögn gagnvart bílaleigum í landinu. Fyrirvaraleysið gerir það að verkum að engum tekst að undirbúa sig og niðurstaðan verður að bílaleigur draga saman bílakaup og bílafloti landsins mun eldast. Verð á bílaleigubílum mun svo hækka sem veikir samkeppnishæfni landsins, þar sem við erum enn að bjóða upp á sömu vöruna, nema á enn hærra verði en áður. Arðsemi greinarinnar lækkar og bílaleigur bíða enn lengur með orkuskipti á bílaflotanum sínum, því eftirspurn eftir rafmagnsbílaleigubílum er lítil sem engin og framlegðin á þeim neikvæð.

Samdráttur í ferðaþjónustu upp á 5% jafngildir heilum loðnubresti. Ef áfram heldur sem horfir og allar aðgerðir stjórnvalda dynja samtímis á ferðaþjónustunni munum við horfa upp á umtalsvert meiri samdrátt en 5% og heildartap þjóðarbúsins mun hlaupa á tugum milljarða.“

Hér er enn ein umsögnin, virðulegur forseti, þar sem er búist við allt að 5% samdrætti í ferðaþjónustu út af öllum þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem er í rauninni manngerð krísa. Þetta er manngerð krísa og er ekki hægt að kenna neinum um nema bara lélegri pólitík. Gjaldþrota hugmyndafræði sem er verið að bera á borð hér aftur og aftur núna, að til þess að bjarga hér útbólgnum fjárlögum á hér að stórhækka skatta og álögur. Hér sjáum við afleiðingarnar og afleiðingarnar verða líklega þær að heimilin sitja uppi með meiri skuldir, fyrirtækin horfa fram á samdrátt og þar af leiðandi verður samdráttur í tekjum ríkisins. Þetta mun í rauninni snúast í höndunum á hæstv. ríkisstjórn. Það verður minna til skiptanna. Það verður minna til skiptanna fyrir heimilin í landinu, fyrir fyrirtækin í landinu og þegar upp verður staðið þá mun hæstv. fjármálaráðherra hafa minna á milli handanna líka. Hefur þetta gerst áður? Já, þetta hefur gerst áður í tíð svo margra vinstri stjórna, bæði innan lands og erlendis. Hafa vinstri menn lært eitthvað af þessu? Nei, ekki neitt. Það á að halda áfram með sömu gömlu hugmyndafræðina þrátt fyrir að allir útreikningar, öll varnaðarorðin liggi fyrir og ekki bara frá einhverjum einum og einum, tugir hundruða umsagna frá svo breiðum hópi í samfélaginu að ég velti fyrir mér hvort það séu bara Geislavarnir ríkisins sem eigi eftir að senda inn umsögn um þessi mál. Það eru allir búnir að senda inn umsögn og þær eru allar neikvæðar. En er hlustað? Nei.