breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég hef hér í nokkrum ræðum farið yfir það sem mér finnst vera að þessu frumvarpi og það er eiginlega bara allt, vinnubrögðin ekki síst.
Virðulegur forseti. Mig langar að vekja athygli þingheims á samantekt. Þetta er minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem er með fyrirsögninni „Samantekt um umsagnir“ og er dagsett 28. október. Ég rak augun í punkt nr. 11 er lýtur að sjálfstæði leik- og grunnskóla. Hér er verið að fjalla um að í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu er lagt til að þeim sjálfstæðu leik- og grunnskólum sem gert hafa þjónustusamning við sveitarfélög verði heimilt að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af vöru og þjónustu sem endurgreiddur er sveitarfélögum og nær t.d. til sorphreinsunar og ræstingar. Samtök verslunar og þjónustu hafa bent á þetta við ýmis tilefni og hef ég, virðulegur forseti, flutt mál og það liggur mál fyrir þinginu frá mér einmitt um þetta og rökin fyrir því eru fyrst og fremst auðvitað þau að sjálfstæðir skólar, hvort sem það eru leik- eða grunnskólar, hafi sambærilega rekstrarstöðu og þeir skólar sem reknir eru af sveitarfélögum í landinu. Fjöldi borgarfulltrúa og bæjarfulltrúa hefur haft samband einmitt út af þessu, ég tala nú ekki um Samtök verslunar og þjónustu og þau fyrirtæki sem hafa verið í rekstri leik- og grunnskóla. Eins og alþjóð veit er ekki eins og það séu mjög margir hérna á Íslandi. Það er ekki eins og einstaklingum sé gert mjög auðvelt fyrir að stofna hér leik- eða grunnskóla. Meira að segja hefur Reykjavíkurborg reynt að leggja alla steina í götu þess að aðilar fari í slíka stofnun og hefur lagst gegn því til að mynda að fyrirtæki opni leikskóla fyrir börn starfsmanna sinna.
En það sem ég vil vekja athygli á og ég bara velti fyrir mér er að þetta kemur úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Fyrir því ráðuneyti fer hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem er jú ekki kjörinn og hann minnir okkur mjög reglulega á það þegar hann er yfirheyrður af fólki að hann sé nú bara embættismaður, hann hafi verið ráðinn í þetta starf. Það vill nú reyndar svo til að hæstv. ráðherra, Daði Már Kristófersson, er líka varaformaður Viðreisnar.
Virðulegur forseti. Ég hélt að ég og þingmenn Viðreisnar værum sammála um ýmislegt. Það var tilfinning mín á síðasta kjörtímabili að það væru ýmis mál sem við gætum sameinast um. Þetta hélt ég að væri eitt af þeim málum. Nei, hér kemur frá ráðuneyti sem er í forsvari Viðreisnar, meira að segja fer varaformaður Viðreisnar fyrir því, að ráðuneytið hafnar því alfarið að farin sé þessi leið sem Samtök verslunar og þjónustu séu að leggja til, þ.e. að sjálfstæðir leik- og grunnskólar njóti endurgreiðslu á virðisaukaskatti líkt og opinberir aðilar. Ráðuneytið telur að sérstök sjónarmið gildi um endurgreiðslu virðisaukaskatts til opinberra aðila og markmið slíkra sérreglna sé m.a. að jafna stöðu opinberra aðila, einkum sveitarfélaga, þannig að virðisaukaskattur hafi ekki áhrif á það hvort opinberir aðilar kjósi að kaupa vörur eða þjónustu utan frá eða þjónusti sig sjálfir. En, virðulegur forseti, er þá enginn vilji til að jafna stöðu sjálfstæðra aðila sem eru að reka leik- og grunnskóla og sveitarfélaga? Það virðist ekki vera og svarið er reyndar lengra en þetta sem ég er að vísa í hér. En ég bara velti fyrir mér, virðulegur forseti, hvort hv. þingmenn Viðreisnar, sem hafa sumir tengt sig við frjálslyndi og talað fyrir einkarekstri í ákveðnum geirum, hafi hreinlega lesið þetta sem kom frá hæstv. ráðherra þeirra, varaformanni Viðreisnar.
Virðulegur forseti. Ég hef hér í nokkrum ræðum farið yfir það helsta sem stingur mjög í stúf. Í fyrsta lagi eru auðvitað vinnubrögðin hér með algerum ólíkindum, að hæstv. ráðherra hafi ekki komið með frumvarp um vörugjöldin sjálfur inn í þingið heldur reynt að lauma því í gegnum nefndina með því að birta um það einhverja fréttatilkynningu á föstudegi. Við vitum jú að Viðreisn lítur svoleiðis á að það sé heiðarleg PR-mennska til að fara út með ruslið svo að sem fæstir taki eftir því. Hér var verið að reyna að lauma inn margra milljarða skattahækkun. Ekki var staðið í þessu púlti og mælt fyrir því og aðilum úti í samfélaginu gefið tækifæri til þess að veita um það umsagnir og koma málinu í eðlilega þinglega meðferð. Nei, þessu var laumað inn í minnisblaði. Ég fór hér líka áðan yfir krónutöluhækkanirnar, hvernig hæstv. núverandi forsætisráðherra talaði á síðasta kjörtímabili um að þessar hækkanir legðust náttúrlega harðast á þá sem minnst hafa milli handanna. (Forseti hringir.) Nú er öllum sama um það því ekki skal rýra verðgildi skatta (Forseti hringir.) en þegar kemur að sóknargjöldum, barnabótum eða öðru þá er það allt önnur saga. (Forseti hringir.) Þetta er þvert á það sem þessir flokkar töluðu um á síðasta kjörtímabili eða lofuðu í aðdraganda kosninga.