breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026 í 2. umræðu. Við erum hér að fjalla um svokallaðan skattorm eða bandorm. Það mál sem er hér til umræðu snertir ekki bara einstaka skatta og mögulega tæknilegar breytingar á lögum, við erum hvorki meira né minna en að sjá hér stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, einnig sýn hennar á hlutverk ríkisins. Ég verð að segja að í tilfelli Samfylkingarinnar kemur svo sem ekkert á óvart í þessu frumvarpi. Við höfum öll vitað að Samfylkingin hefur lengi, þó að kannski hafi örlítið annar blær verið á núna með nýrri forystu, haft mikla trú á því að hægt sé að skattleggja sig út úr öllum vanda og það hefur yfirleitt verið lausnin við flestum hlutum að hækka skatta og stækka millifærslukerfin. Það er sýn þeirra á hlutverk ríkisins og því kemur í sjálfu sér ekkert á óvart í bandorminum varðandi Samfylkinguna. Ég verð hins vegar að segja að það hafa orðið ótrúleg sinnaskipti hjá Viðreisn. Nú hefur Viðreisn verið flokkur sem hefur talið sig, að því er ég best veit alla vega, hægri sinnaðan og borgaralega þenkjandi. Margir vilja nú meina að grunnurinn í Viðreisn sé fyrrum Sjálfstæðismenn sem höfðu kannski aðra sýn en stærsti hluti flokksins á inngöngu í Evrópusambandið. Nú veit ég ekki hvort Viðreisn hefur keypt ríkisstjórnarsamstarfið svona dýru verði að þau vilji ekki setja nein fingraför á fjárlagafrumvarpið af neinu viti eða skattheimtu, þeir hafi hreinlega gefist upp fyrir Samfylkingunni. Það er alla vega áleitin spurning. Þegar maður horfir hér yfir salinn og við förum að ræða skatta og gjöld þá sér maður nú alla vega stöku Viðreisnarmann í rauninni líða illa undir þeirri umræðu og það er þá í samræmi við það sem flokkurinn hefur a.m.k. boðað að hann stæði fyrir.
Einnig var athyglisvert að heyra frá hv. þm. Sigríði Andersen. Þegar ég henti á hana einni stuttri spurningu eftir ræðu hennar, henti á hana einu andsvari þar sem ég bað hana að gefa álit sitt á þessu, þá taldi hún reyndar stöðuna vera þannig að það væri Flokkur fólksins sem væri höfuð ríkisstjórnarinnar og það væru öll hans útgjaldafrumvörp sem væru raunverulega ástæðan fyrir því að Viðreisn hefði ákveðið að gerast flokkur skattheimtu, en þau skýra það kannski betur síðar.
Í því frumvarpi sem við ræðum er um að ræða verulegar skattahækkanir á í rauninni breiðan hóp í íslensku samfélagi. Það má eiginlega segja að fáir séu undanskildir. Við sáum nú síðasta sumar hvernig einn af höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar var tekinn með stóraukinni skattheimtu, veiðigjöldum. Það er eiginlega ótrúlegt að horfa upp á þá stöðu sem er að teiknast upp núna, að afrakstur ríkisstjórnarinnar af þeim álögum og allri þeirri baráttu sem þar var lögð til skuli mögulega vera um milljarður í aukningu. Það er ótrúleg niðurstaða ef hún reynist rétt.
Í þessu frumvarpi sem hér liggur undir hafa menn verið að hækka ýmsa gjaldaliði. Það er verið að hækka kolefnisgjald, olíugjald, kílómetragjaldið sem við ræddum hér fyrr í dag og almennt og sérstakt bensíngjald, bifreiðagjöldin og svo auðvitað þetta staðlaða; gjöld á áfengi, tóbak og nikótínvörur. Þetta eru jú ekki skattar sem snerta bara einhvern lítinn hóp af íslensku samfélagi. Þetta eru skattar og gjöld sem snerta stærstan hluta íslensku þjóðarinnar. Flestir eiga t.d. bíl og þetta mun örugglega hafa áhrif á vöruverð, t.d. í gegnum flutninga, svo dæmi sé tekið. En klárlega hefur þetta veruleg áhrif á daglegt líf fólks, samgöngur, atvinnurekstur og verðlag í landinu. Ef við horfum á fyrirliggjandi gögn þá eru þessar skattahækkanir líklega einhvers staðar á bilinu 28–30 milljarðar kr. Það eru ekki litlar upphæðir, sérstaklega í ljósi þess að ríkisstjórnin boðaði að hún ætlaði ekki að hækka skatta á venjulegt fólk og hlífa atvinnulífinu. Við munum öll hvernig haustið lagði af stað, það byrjaði með slagorðinu verðmætasköpunarhaust og það virðist svo sannarlega vera að snúast upp í andhverfu sína.
Við í Sjálfstæðisflokknum höfum yfirleitt talað fyrir einföldu skattkerfi og hóflegum sköttum. Þannig hefur okkar lífssýn verið og við teljum að það sé grundvöllur öflugs atvinnulífs því skattar eiga jú ekki að draga úr framtaki fólks og fyrirtækja. Þeim er fremur ætlað að skapa umhverfi þar sem nýsköpun, fjárfestingar og aukin verðmætasköpun fær að blómstra. Það gerist í rauninni með hóflegri skattheimtu og að leyfa fólki að njóta eigin ávaxta. Af hverju áttu að leggja aukalega á þig ef þú uppskerð ekki neitt? Hver á að vera hvatinn fyrir því að þú leggir harðar að þér? Jú, að þú leggir meira til samfélagsins, borgir hærri skatta? Nei, ég hugsa að það taki ekki nokkur einasti maður undir að það sé hvati. Það er augljóslega til þess fallið að letja fólk. Það er ekki hvetjandi ef þú færð ekki að halda eftir því sjálfsaflafé þegar þú leggur á þig aukalega vinnu til að uppskera.
En með því að leggja á hóflega skatta þá erum við í raun líka að tryggja velferðina vegna þess að grunnurinn að velferðinni í samfélaginu okkar er auðvitað sá að við séum með aðila sem skila þróttmiklu atvinnulífi og þróttmikið atvinnulíf getur borið hærri skatta í gegnum aukin umsvif, þannig að þú ert í rauninni að hvetja fólk og fyrirtæki til að bæta við sig einni tönn og uppskera en gefa jafnframt af sér til samfélagsins. Það gerist hins vegar alls ekki með vaxandi skattpíningu.
Þegar stjórnvöld velja að hækka skatta á þann hátt að íslensk fyrirtæki búi við lakara rekstrarumhverfi en keppinautarnir í öðrum löndum þá er auðvitað verið að tefla samkeppnishæfni atvinnulífsins í tvísýnu. Aftur ætla ég að nefna hér veiðigjöldin því þau eru gott fordæmi úr fortíðinni. Það var bent á að með hækkun veiðigjalda væri í rauninni verið að draga úr samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og það myndi t.d. leiða af sér minnkandi fjármuni til nýsköpunar. Ef þú ert kannski knappur á fé eru minni líkur á því að þú verjir þeim fjármunum til nýsköpunar. Þessi stefna gengur því í raun þvert gegn markmiðum um aukna verðmætasköpun, hærri laun og betri lífskjör. Það má hverjum manni vera ljóst.
En ef við skoðum þennan tímapunkt núna þegar verið er að leggja á þessar auknu álögur þá verður að segjast að þetta sé sérstaklega alvarlegt því að í fyrsta sinn í langan tíma sjást merki um kólnun í hagkerfinu og margar af helstu atvinnugreinum landsins glíma við erfiðleika. Í slíkum aðstæðum er ábyrgðarlaust að draga enn frekar úr þrótti fyrirtækja með aukinni skattlagningu. Þetta vita reyndar fulltrúar meiri hlutans því að meira að segja frumvarp sem við vorum að greiða atkvæði um hér fyrr í dag, þegar var verið að ræða innviðagjöld á skemmtiferðaskip, var einmitt birtingarmynd þess ef farið er of geyst í skattlagningu. Það leiðir af sér að samkeppnishæfni landsins minnkar og í þessu tilfelli þegar var verið að leggja verulegar álögur á skemmtiferðaskipin þá skilaði það sér einfaldlega í því að bókunarlistinn tæmdist. Þessi fyrirtæki eiga val um að fara annað og ef við stöndumst ekki samkeppni, t.d. ef við horfum bara á verðlag og höfum kannski ekkert meira að bjóða en aðrir þá er valið tiltölulega einfalt og það leiðir af sér að við erum þá að tapa markaðshlutdeild. Þessu gekkst ríkisstjórnin við og leiðin til þess var í rauninni að lækka álögur. Þegar við erum í raun búin að vera hér og verja stærstum hluta af deginum og undaförnum dögum hér í þinginu í að benda á að þetta sé nú staðreyndin í málinu, að með því að leggja of miklar byrðar á fyrirtæki, þú verðleggir hlutina of hátt, þú dragir úr samkeppnisforskoti eða samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, þá er voðinn vís. Á sama tíma og þau eru einmitt að benda á að það hafi verið rétt og skynsamlegt hjá þeim að lækka innviðagjaldið þá eru þau engu að síður að fara þvert gegn því og hækka hjá mörgum öðrum greinum.
Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðum m.a. fram raunhæfar tillögur að hallalausum fjárlögum hér við 2. umræðu fjárlaga. Margar af þeim tillögum voru skynsamlegar, ætla ég að leyfa mér að segja, og alla vega valkostur við að fara í aukna skattheimtu. En allar þessar tillögur voru felldar af stjórnarmeirihlutanum þannig að í stað þess að vera með aðhald og forgangsröðun þá ákvað ríkisstjórnin einfaldlega að auka útgjöld og fjármagna þau með skattahækkunum, greiða ekki niður skuldir þrátt fyrir að það sé tekjuaukning, og jafnvel tekjuaukning langt umfram spár. Þetta er leiðin sem ríkisstjórnin valdi og það er klárlega að mínu viti rangur tímapunktur sem valinn er. Þetta er stefna sem felur í sér að ríkið er að seilast dýpra í vasa fólks og fyrirtækja í stað þess að axla ábyrgð. Ríkisstjórnin hefur státað sig af því að hafa komið fram með þá skynsamlegu hugmynd að leita eftir því hjá íslensku þjóðinni að finna hagræðingartillögur, hefur nefnt það í hverri ræðu hér síðan. Þetta heppnaðist reyndar mjög vel, alla vega kom fjöldinn allur af tillögum. Við höfum ekki séð mikið af þessum tillögum, jafnvel ekki neitt, og þó að ríkisstjórnin hafi teflt þessu fram sem valkosti og nefni það hér sýknt og heilagt að það eigi að spara yfir 100 milljarða á kjörtímabilinu þá sjá þeir ekki ástæðu til þess að tefla fram neinu af því sem þar kemur fram í stað þess að fara í aukna skattheimtu. Ég vil leyfa mér að segja að það er ekki skynsamleg væntingastjórnun. Ég hefði haldið að það hefði verið skynsamlegt hjá ríkisstjórninni að vera með þetta a.m.k. í bland en auðvitað hefði verið skynsamlegt hjá ríkisstjórninni að reyna fyrst að ná hallalausum fjárlögum, einbeita sér að því og gera það í raun með því að draga úr kostnaði, forgangsraða og t.d. fara eftir einhverjum þeim tillögum til sparnaðar sem Sjálfstæðisflokkurinn benti hér á í umræðunni. Nei, það er ekki leiðin sem þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að velja.
Virðulegur forseti. Það er staðreynd, og hún er studd bæði reynslu og rannsóknum, að háir og íþyngjandi skattar draga úr fjárfestingu eins og hér hefur áður komið fram, veikja samkeppnishæfni og minnka svigrúm fyrirtækja til nýsköpunar. Þetta hef ég sagt en ég vil ítreka hér að þetta skiptir verulegu máli.
Frú forseti. Aðeins um ökutæki og ferðaþjónustuna. Mér finnst sérstök ástæða til að staldra við skattahækkanir á bifreiðar og eldsneyti. Við höfum séð að í tengslum við boðaða hækkun á vörugjöldunum verður hegðunarbreyting hjá íslensku þjóðinni eins og búast mátti við. Það er augljóst að verð á nýjum bifreiðum mun hækka verulega um áramótin með álagningu vörugjaldanna. Og hvað gerir landinn? Jú, hann lætur ekki bjóða sér það. Hann fer þá af stað núna fyrir áramótin og kaupir sér bíl. Hann flýtir í rauninni sínum kaupum til að spara sér fjármuni. Það sama geri ég ráð fyrir að t.d. bílaleigurnar hafi gert. Niðurstaðan er þá sú að það verður væntanlega þónokkur aukning í tekjum hjá ríkissjóði í gegnum virðisauka en það verða örugglega litlar heimtur af vörugjöldum af bifreiðum á fyrstu mánuðum næsta árs. Ríkið ætlar að taka inn um 7,5 milljarða kr. á ári og ég ætla að leyfa mér að segja það og spá því að ríkið muni ekki ná einu sinni helmingnum af þeirri tölu á næsta ári.
Virðulegur forseti. Skattar draga úr framtakssemi einstaklinga og fyrirtækja. Við það minnkar hin margnefnda þjóðarkaka. Þegar kakan minnkar þá verður jú minna til skiptanna en einnig fyrir ríkissjóð. Þetta er í rauninni einföld hagfræði. Samdráttur í efnahagslífinu leiðir að lokum til lægri skatttekna, minni fjárfestingar og verri forsendna til að byggja upp velferðarkerfi. Það er öflugt og vaxandi efnahagslíf sem er forsenda sterks velferðarsamfélags, ekki síhækkandi skattar.
Virðulegur forseti. Formenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar lofuðu því fyrir kosningar að skattar á almenning yrðu ekki hækkaðir. Nú liggur það fyrir í frumvarpi sem hér er undir að það felur í sér umtalsverðar skattahækkanir á ökutæki og eldsneyti. Það afnemur samsköttun hjóna þó að mönnum sé mjög illa við það orðatiltæki í ríkisstjórninni; kílómetragjaldið sem við ræddum hér fyrr í dag á öll ökutæki, hækkun jöfnunargjalds á raforku og 3,7% hækkun á krónutölugjöldum. Auk þess er aukin skattlagning leigutekna sem á eftir að birtast hér síðar og skattur á streymisveitur. Þetta eru nokkrar af þeim hugmyndum sem núverandi ríkisstjórn ætlar að koma í verk. Það verður áhugavert að sjá hvaða viðtökur þjóðin mun veita þessum skattahækkunum. Ég ætla að leyfa mér að spá því að hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar séu senn á enda.
Frú forseti. Af því að ég sé að tíminn er búinn ætla ég að biðja þig að setja mig aftur á mælendaskrá.