157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[19:53]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef hlustað á ræðu hv. þingmanns, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokks Íslands. Honum varð tíðrætt um samkeppnishæfni, að gæta að samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja í þessum skattahækkunaráformum ríkisstjórnarinnar. Í ljósi þess ætlaði ég kannski að spyrja hv. þingmann hver hans skoðun sé á því hver vandi ríkissjóðs sé í raun og veru. Hver er grundvallarvandi ríkissjóðs? Hver er hann? Er hv. þingmaður sammála mér í því að það sé augljóst að grundvallarvandamál íslenska ríkissjóðsins séu útgjöldin? Það má líkja þessu við pípulagningamann sem kemur í hús og íbúarnir skilja ekki hve mikið þeir þurfa að borga fyrir heita vatnið, skilja bara ekkert í því. Það eru bara endalausir reikningar fyrir notkun á heitu vatni og íbúarnir nota bara örlítið af því, fara í bað einu sinni í viku og reyna að spara vatnið en alltaf þurfa þeir að borga jafn háa reikninga. Svo kemst pípulagningamaður að því að kerfið er míglekt. Hann finnur þrjá risastóra leka. Það er ríkisbáknið, það er míglekt. Peningarnir renna í stríðum straumum í kerfið og enginn virðist geta stöðvað þann leka. Svo er það hælisleitendakerfið, það fossar út úr því fjármunum ríkissjóðs. Svo er það loftslagskerfið, þar bara (Forseti hringir.) bunar vatnið út og enginn ræður við eitt né neitt og enginn veit einu sinni í hvað það fer eða hvaða gagn það gerir. Hvert er álit hv. þingmanns á þessu?