breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir þetta andsvar og áhugaverðar spurningar. Varðandi vanda ríkissjóðs þá er ég sammála hv. þingmanni um það að vandi ríkissjóðs er ekki skortur á tekjum, það er langur vegur frá því. Vandi ríkissjóðs er útgjaldavandi. Þingmaðurinn nefndi hér þrjár ástæður, m.a. ríkisbáknið, hælisleitendakerfið og svo loftslagsmálin.
Varðandi ríkisbáknið þá er það einfaldlega þannig að við Sjálfstæðismenn höfum talað fyrir minna ríki og meira einstaklingsfrelsi. Auðvitað er það þannig að ríkið þarf ekki að sinna nema broti af því sem það er að gera í dag. Það gæti verið miklu duglegra í því að hagnýta sér kosti einkareksturs eða að nýta kannski fleiri leiðir þar sem augljóst er að ríkið þarf ekki að koma að. Ríkið á í raun bara eingöngu að sinna starfsemi af samkeppnisástæðum, þar sem fákeppni er eða eitthvað slíkt. Þá getur verið skynsamlegt fyrir ríkið að stíga inn eða hafa grunnkerfin í lagi. Alla vega þurfa menn að vera með eitt á hreinu: Ríkið þarf að geta fjármagnað þetta. Þó að um væri að ræða einkarekstur sem leysir úr vanda þá þarf ríkið að fjármagna það, t.d. ef við horfum á heilbrigðiskerfið o.s.frv. Ríkið mætti vera mun duglegra að nýta hagkvæmni einkarekstursins. Varðandi hælisleitendakerfið þá stefnir nú í að það muni hægt og rólega lagast. Við gerðum mistök fyrir nokkrum árum þar sem við vorum með útlendingalöggjöf sem var of víð og við skárum okkur úr frá því sem gerðist hjá öðrum þjóðum. Það leiddi til þess að við fengum aukið álag af þessu. Varðandi loftslagskerfið, þá svara ég því kannski í næsta svari.