157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:00]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt annað andsvar og brýningu hans hér. Bara svo að við klárum þetta með ríkisbáknið þá er ég sammála hv. þingmanni um það að það er engin ástæða til að fara alltaf af stað með nýjar stofnanir, og sérstaklega ekki ef þær eru litlar og veikar. Við eigum í raun að hafa þetta þannig að við séum með stórar og öflugar stofnanir. Þegar við höfum á annað borð ákveðið að það sé eitthvað sem ríkið á að sinna þá er ég hlynntur því að stofnanirnar séu færri og stærri frekar en að við séum með litlar og lítt burðugar stofnanir. Varðandi hælisleitendur þá er ég ósammála hv. þingmanni um að það sjáist ekki svart á hvítu í þeim efnum. Staðan er þannig að við höfum séð fækkun á umsóknum um 74%, svo að það sé nefnt. Auðvitað er það þannig að það hefur gengið heldur betur ef maður horfir t.d. á þá fjármuni sem fara í þetta. En það er engu að síður töluvert verk að vinna og ég er sammála því og vonandi sjáum við einhver frumvörp á komandi vorþingi í tengslum við það. Ríkisstjórnin hefur alla vega boðað það og það eru frumvörp sem voru unnin í tíð Sjálfstæðisflokksins í dómsmálaráðuneytinu þannig að ég treysti því að það verði þá hið ágætasta verk.

Varðandi loftslagskerfið þá er dálítið erfitt að eiga við þann kaleik. Við erum auðvitað með EES-samninginn og við erum með, svo að ég segi það bara þannig — það er ljóst að það er vá fyrir dyrum í loftslagsmálum, alla vega ef við hlustum á flesta vísindamenn. Þær lausnir sem hefur verið reynt að búa til eiga í grunninn að styðja við það að menn reyni að finna lausnir og geti unnið hlutina án þess að losa frá sér kolefni eða mögulega þá að ná kolefni úr andrúmsloftinu og binda það. Ég er sammála þingmanninum, þetta hefur verið rándýrt og þetta hefur gert það að verkum — af því að við erum í raun ein í þessu, þ.e. Evrópa. Ef við ætlum okkur að eiga viðskipti við önnur lönd sem (Forseti hringir.) ekki eru að gera það sama er augljóst að það dregur úr samkeppnishæfni vegna þess að þetta kostar fjármagn, það er alveg hárrétt. En í upphafi fannst mér hvatinn vera skynsamlegur og góður.