breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Vegna orðaskipta hans og hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar langar mig nú að skjóta því inn í það samtal að þó að einhverjar breytingar hafi orðið, sem virðast nú reyndar að hluta til vera að ganga til baka og straumurinn aftur vera að aukast, þá einkennist þetta náttúrlega af svokallaðri hraðablindu. Árum saman voru u.þ.b. 25 einstaklingar að fá hér hæli á grundvelli hælisumsókna og umsókna um alþjóðlega vernd. Það var hins vegar ekki það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann út í heldur þá staðreynd að eigendur ökutækja í landinu — a.m.k. eins langt aftur og ég hef náð að skoða það, það kann að vera skurðpunktur einhvers staðar í fyrndinni — hafa verið að borga umtalsvert meira til ríkisins en nokkurn tímann hefur skilað sér í samgöngukerfið. Það er söguleg staðreynd. En við fáum alltaf með reglulegu millibili, og höfum fengið alveg síðan að hér var sett á svokallað bifreiðagjald, þá með sömu rökum. Jafnvel þótt lögum um opinber fjármál hafi verið breytt og hér sé ekki lengur um markaðan tekjustofn að ræða þá er rökstuðningurinn fyrir hinum ýmsu skattbreytingum og hækkunum í gegnum tíðina alltaf sá sami, þ.e. að það vanti meira fé inn í samgöngukerfið. En bilið hefur haldist tiltölulega lítið breytt, þ.e. bilið milli þess sem er innheimt, þ.e. skattanna, og framkvæmdahliðarinnar. Auðvitað hafa tölurnar breyst en hlutfallslega hefur bilið ekki mikið breyst til fjölda ára. Mér finnst því eðlilegt að spyrja: Telur hv. þingmaður að enn einn skatturinn, eins og var verið að afgreiða hér á milli umræðna áðan, svokallaður kílómetraskattur, verði í sögulegu samhengi stóra breytan í því?