breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef við förum kannski beint yfir í þetta varðandi skattheimtu af umferðinni þá hefur það legið fyrir nokkuð lengi — jafnvel meðan við vorum með þessa svokölluðu mörkuðu tekjustofna — að menn ákveða á hverjum tíma hvernig þeir ætla að láta íslenska þegna og íslensk fyrirtæki borga fyrir þá þjónustu sem ríkinu er ætlað að veita. Það var t.d. ákveðið að skattleggja bíla og bílar hafa í raun staðið mjög lengi undir stórum hluta af öllum þeim kostnaði sem fylgir, jafnvel öllum kostnaði. Ef við förum ekki út í einhver slys eða eitthvað slíkt þá hafa gjöld á bifreiðum borgað þetta og meira til og jafnvel mun meira svo að munar tugum milljarða. Það er bara ákvörðun sem er tekin. Menn geta svo ákveðið að skattleggja t.d. örvhenta. Menn geta bara ráðið því hverja þeir ætla að skattleggja hvað þetta varðar. Að vísu myndi þetta ekki ganga með örvhenta því að það er jafnræðisregla sem þarf að virða en menn geta ákveðið hvernig þeir ætla að ná þessum skatti inn. Það getur verið mismunandi, t.d. eftir pólitískum skoðunum, hvað mönnum finnst réttlætanlegt í þeim efnum; ég nefni hér höfuðborg, landsbyggð o.s.frv. Ef við horfum t.d. á kílómetragjaldið þá held ég að það sé bara röng leið til að innheimta, ég held að það sé allt of dýrt kerfi, að það muni á endanum sýna sig að það sé of dýrt að innheimta þetta með þessum hætti, að þetta sé of flókið. Við eigum að reyna að hafa skattheimtu einfalda og þá verða örugglega betri heimtur.