157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:07]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Mig langar að telja þetta aðeins upp. Þetta er alls ekki tæmandi listi: Við erum að tala um gamla bifreiðagjaldið, við erum að tala um gamla þungaskattinn, við erum að tala um vöruskattinn, sem nú á að kalla vörugjöld, við erum að tala um kílómetraskattinn og við gætum talið upp mun fleiri atriði. Það sem ég var að fiska eftir í svari hv. þingmanns — þó að ég hafi verið hrifinn af þessari líkingu með örvhenta, sem sýnir kannski hversu útópískt málið er orðið — er sú staðreynd, eins og þingmaðurinn kom sjálfur að í ræðu sinni, ef ég tók rétt eftir, að vandinn við uppbyggingu samgöngukerfisins er alls ekki á tekjuhliðinni, það sem við köllum í daglegu tali skattheimtu. Vandinn hefur verið sá að peningurinn sem við höfum verið að innheimta af ökutækjaeigendum í gegnum tíðina hefur ekki skilað sér til uppbyggingar á samgöngukerfinu í neinu samræmi við það sem verið er að innheimta. Það er staðreynd. Undan því geta meiri hlutinn og hæstv. ríkisstjórn ekkert vikið sér. Þau geta haft þá skoðun að þau vilji bara hafa þetta dýrara. Þá hefði reyndar, að mati þess sem hér stendur, verið miklu hreinlegra að koma hreint til dyranna og segja strax í kosningabaráttunni: Við ætlum að hækka skatta. En það var akkúrat öfugt við það sem þau sögðu. Þau sögðust ekki ætla að hækka skatta. Nú eru þau að hækka skatta á ökutækjaeigendur með gamalli margtugginni röksemdafærslu sem aldrei hefur þó skilað því að skatturinn skili sér til framkvæmda. Þetta eru svona vangaveltur sem mig langaði að deila með hv. þingmanni.