157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:09]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið og ágætar vangaveltur. Ég deili því með honum að það er vandratað í þessari innheimtu og menn hafa oft verið að púsla. Ef við horfum á kerfið eins og það er í dag og hvernig það verður eftir áramótin þá er það augljóst gagnvart þeim farartækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti að þar er tiltölulega auðvelt að innheimta með óbreyttu fyrirkomulagi. Auðvitað þarf að taka aðeins til í þessu. Menn eru til viðbótar að leggja á einhverja græna skatta o.s.frv. sem sér kannski ekki alveg fyrir endann á og svo kemur í ljós að menn eru kannski á endanum að borga allt of háar tölur. En það er líka hægt, þó að ég sé ekki endilega talsmaður þess — þá getur svona kerfi líka haft önnur áhrif. Ef við nefnum dæmi eins og kílómetragjaldið þá hugsa ég að ef maður horfir á eitthvað sem gæti kallast réttlæti og slit á vegum o.s.frv. gæti það alveg verið góð hugsun og jafnvel falleg að þú borgir í samræmi við það sem þú slítur eða keyrir. En það má samt ekki vera þannig að það sé eiginlega gjörsamlega ómögulegt að halda utan um þetta. Hér hafa t.d. verið fluttar ræður í dag þar sem bent hefur verið á að það eru ákveðnir hópar í samfélaginu sem eru t.d. ekki jafn tæknivæddir og við sem teljum okkur vera tæknivædd; þetta er fólk sem mun líða fyrir þessa innheimtu. Ég vil því segja: Ef við ætlum að setja á skatt höfum hann þá einfaldan, skýran og skilmerkilegan þannig að fólk viti nákvæmlega hvað það á að gera. Ég get alveg lofað því að innheimtan af slíkum skatti verður betri en blasir við okkur núna í kílómetragjaldinu.