breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég ætla aðeins að gera rannsókn á því hvað er venjulegt fólk. Án þess að ég ætli að vísa í einhverja sjónvarpsþætti sem ég hef ekki séð þá ætla ég að velta þessu örlítið fyrir mér í upphafi ræðu. Flokkarnir sem mynda ríkisstjórn margir hverjir, Viðreisn og Samfylkingin, lofuðu því fyrir kosningar — þeir lofuðu því reyndar ekki að hækka ekki skatta, en þeir ætluðu ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Þeir ætluðu að ná í meiri skatta frá sjávarútvegi og stóðu við það og gerðu það í sumar, svo eftirminnilegt er, og lögðu veiðigjaldið á. Það var bara ansi vel heppnað hjá þeim, ef ég á að segja alveg eins og er, frú forseti. Menn klöppuðu og þótti lítið til um stjórnarandstöðuna sem var að reyna að benda á að þetta gæti haft áhrif á sjávarbyggðir víða um land, og þar á meðal var ég, en það má alveg segja réttilega að við höfum gjörtapað þar áróðrinum. En sá hlær best sem síðast hlær, segi ég, vegna þess að áhrifin af þeirri skattahækkun sem var svona vinsæl eru bara rétt að byrja að koma í ljós.
En þetta venjulega fólk voru greinilega ekki útgerðarmennirnir og þá veltir maður fyrir sér: Hvað er þetta venjulega fólk? Er það fólkið sem fær að kenna á því núna þegar bílar hækka um 1–2 milljónir, venjulegur fjölskyldubíll, eftir áramót? Er það venjulega fólkið? Nei, líklega er venjulega fólkið það sem er á hjóli eða labbar. Er það fólkið sem er að nýta skattþrepin, hjónin sem eru að nýta skattþrep tekjulægri maka? Nú er verið að fella það burtu. Það er ekki heimilt að nýta þetta ónýtta skattþrep makans. Nú á að fella það burtu og það á að skila nokkrum milljörðum í ríkissjóð. Er þetta venjulega fólkið? Nei, ríkisstjórnin segir að þetta sé efnafólkið, þetta sé tekjuhæsta fólkið. Það er sem sagt ekki þetta fólk. Það eru ekki sjómennirnir sem fara út á sjó vikum saman og koma heim og hafa góðar tekjur og makinn er kannski að hugsa um börn og bú eða er í hlutastarfi og er því með ónýtt skattþrep. Það er ekki venjulega fólkið. Er það fólkið sem notar ekki skattafsláttinn sinn, persónuafsláttinn? Hefur sem sagt ekki tekjur eða mjög lágar tekjur en hefur svo einhverjar fjármagnstekjur því þennan afslátt á að fella niður. Þetta er ekki venjulega fólkið. Ég er búinn að telja upp svo marga flokka að það er leitun að því hvaða fólk stendur eiginlega eftir. Það eru ekki bifreiðaeigendur, það eru ekki þeir sem aka bifreiðum, það eru ekki þeir sem kaupa bifreiðar. Það eru ekki þeir sem nýta þennan skattafslátt eða skattþrep milli hjóna þannig að það er orðið fátt um fína drætti, frú forseti.
En það er náttúrlega einkenni vinstri stjórna að þær kunna eitt betur en flestir aðrir, þ.e. að skattleggja, og hugmyndaflugið hjá þeim er aðdáunarvert í því að finna upp nýja skatta eða hækka einhverja skatta eða finna upp gamla skatta og taka þá upp aftur, jafnvel áratugagamla skatta, þannig að ég dáist náttúrlega að hugmyndafluginu. En þetta bitnar auðvitað á fólkinu í landinu, frú forseti, og ég er handviss um það núna, þegar við göngum út í jólahátíðina eftir einhverja daga, að jólaboðin verða með þeim hætti þessi jól að mönnum verður tíðrætt um skattahækkanir, sérstaklega held ég að kílómetragjaldið, miðað við það sem ég hef fengið sent og símtölin sem ég hef fengið, sé það sem fólk á erfitt með að skilja og erfitt með að þola. Fólk skilur ekki að það þurfi að standa í einhverju umstangi og að ríkið sé með auga á því hvernig það keyrir og hvert, telji ofan í það kílómetrana. Þetta fer í taugarnar á venjulegu fólki. Fólk vill auðvitað bara borga sitt bensín við dælu. En þetta er vinstri stjórn og Viðreisn sem sagðist vera svona borgaralegur flokkur, klofningur út úr Sjálfstæðisflokknum, þeir eru bara ótíndur vinstri flokkur, frú forseti, ótíndur vinstri flokkur.