157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:23]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég kem hér upp og leita ásjár forseta. Nú er það svo að á heimasíðu Flokks fólksins er fullyrt að Miðflokkurinn sé á móti og hafi verið á móti jólabónus sem var til afgreiðslu áðan og á einkasíðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar er fullyrt að Mið- og Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið á móti jólabónus til þeirra tekjulægstu. Frú forseti. Þetta er ekki í boði, þetta er bara ekki í boði. Það er hægt að fletta upp hverju einasta atkvæði hér. Sjálfur fór ég í atkvæðaskýringu og gerði grein fyrir því að ég hefði ákveðnar efasemdir um þetta kerfi sem væri verið að notast við en sagði já. Formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sagði líka já. Ég held að enginn í Sjálfstæðisflokknum hafi sagt nei. Það verður að draga menn til ábyrgðar, frú forseti, fyrir að ljúga vísvitandi í einhverjum atkvæðaveiðum úti í samfélaginu því að hér er ekki um einhverja túlkun að ræða. Atkvæðin liggja fyrir, frú forseti, og þetta er lygi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)