157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:24]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta er alvarlegt mál. Hér eiga sér stað mikilvægar umræður í þingsal um stór mál. Hér vorum við að greiða atkvæði í dag um það hvernig við myndum verja sem best fjármunum til þeirra sem á þurfa að halda nú í jólamánuðinum. Það var umræðan í dag. Umræðan var um það hvernig þessir peningar, 2 milljarðar sem voru til umráða, myndu nýtast þeim sem helst þyrftu á að halda sem best. Gagnrýnin var sú að hér væri verið að nýta stóran part af þeim peningum fyrir þá sem ekki þyrftu á þeim að halda. Þá ákveður stjórnarflokkurinn einn, sem sakar okkur ítrekað um að vera með falsfréttir, að fara út og saka fólk um eitthvað allt annað en hér fór fram í dag. Þetta er alvarlegt, virðulegur forseti.