breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Það er kannski leiðinlegt, frú forseti, að sitja undir þessu hér, en það eru kannski engar fréttir að ósannindi birtist á bloggsíðum stjórnarliða. Það eru kannski engar fréttir og eru engar fréttir. Sjálfur þekki ég til eldra fólks sem á töluvert miklar eignir, eignir upp á nokkur hundruð milljónir, sem þiggur þennan jólabónus, þennan Covid-bónus. Það er það sem bæði Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýndu. Við eigum að veita fjármununum á rétta staði til þeirra sem þurfa á því að halda. Stóreignafólk þarf ekki á jólabónus að halda, látum þennan pening renna til þeirra sem þurfa þess. Það kemur ekkert á óvart að hér séu þingmenn í Flokki fólksins með ósannindi á sínum síðum en þeir dæma sig sjálfir og skrifa sína sögu sjálfir.