157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:27]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Það hefur töluverð umræða átt sér stað og ég þarf ekki að fara í ítarlegu máli yfir nefndarálit 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem er gott og kjarnyrt. Hér er verið að leggja til töluverðar og allt of miklar hækkanir á alls kyns sköttum og gjöldum eins og farið hefur verið yfir; kolefnisgjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, almennu og sérstöku bensíngjaldi, bifreiðagjaldi og gjaldi af áfengi, tóbaki og nikótínvörum svo eitthvað sé nefnt.

Hér eru líka aðrar breytingar og mig langaði aðeins að gera tilraun til að setja þetta í samhengi. Það er auðvitað hefð fyrir því til að tekjustofnar haldi stærð sinni að þeir taki breytingum ár frá ári. Hér er hins vegar verið að leggja til 3,7% hækkun en ekki 2,5% hækkun sem væri eðlilegra, sanngjarnara, skynsamlegra og í samræmi við verðbólgumarkmið og ætti þá að styðja við þau markmið sem ríkisstjórnin segir á góðum dögum að hún geri.

Mig langar að draga fram eitt atriði sem hefur verið nefnt af öðrum hv. þingmönnum og snýr að samsköttun hjóna. Það er eitthvað svo ótrúlega augljóst og áberandi dæmi um það þegar ríkisstjórnin og meiri hlutinn hér í þinginu segja eitt en gera síðan annað. Þeir flokkar sem mynda ríkisstjórn, sérstaklega Viðreisn en Samfylkingin líka, sögðust ekki ætla að hækka skatta á venjulegt fólk, ekki á vinnandi fólk og venjulegt fólk. En þegar skattar eru hækkaðir um tugi milljarða þá að sjálfsögðu eru skattar hækkaðir á vinnandi fólk og venjulegt fólk.

Samsköttun hjóna og þær breytingar sem þar er verið að leggja til eru ótrúlega óskynsamlegar. Ég geri ráð fyrir því að ýmsir hv. þingmenn í meiri hlutanum beri fyrir sig rök fyrir þeirri hækkun, kalli þetta glufur og örugglega einhverjir sem koma með jafnréttisrök inn í þessa mynd, að þetta letji konur til að vera á vinnumarkaði og eitthvað sem ég hef áður heyrt. En prinsippið er þetta: Við lítum á fjölskylduna sem einingu. Við gerum það í kerfinu. Við gerum það í orðum okkar og það er sterkur hluti af okkar samfélagsgerð. Það er ótrúlega margt fólk, ég held að það sé hátt í 15.000 manns, sem notar þessa heimild og hefur gert, oft tímabundið og stundum til lengri tíma. Uppistaðan af þessu fólki er að sjálfsögðu venjulegt fólk. Þetta er fólk sem er í mjög mismunandi stöðu af mismunandi ástæðum og nýtir sér þessa heimild, oft vegna þess að það hefur ekki valkost til að gera eitthvað annað. Þetta er bein skattahækkun á stóran hóp í samfélaginu sem ég skil ekki hvernig menn geta komist að þeirri niðurstöðu að sé skynsamlegt að gera og draga þá ekki til baka að þau séu hætt við að ætla ekki að hækka skatta á vinnandi og venjulegt fólk.

Síðan hefur auðvitað mikið farið fyrir hinu svokallaða verðmætasköpunarhausti. Það fer auðvitað almennt mikið fyrir sterkum línum sem eru vel skreyttar í myndum og myndböndum sem er hluti af stjórnmálaumræðunni í dag. Ég kann að hljóma eins og fúll karl þegar ég segi að mér finnist fullmikið af því og minna af dýpri umræðu þar sem við raunverulega meinum það sem við erum að segja og segjum það sem við erum að meina og ræðum hluti í stærra samhengi. Ég er ekki hér til að segja að allt sem hefur gerst í efnahagslífinu á Íslandi sé þessari ríkisstjórn að kenna sem hefur starfað í eitt ár. Það væri að mínu viti ómaklegt, ósanngjarnt og einfaldlega ekki rétt. Hins vegar held ég að þessi frasi, sem er einn af mörgum, muni ekki eldast sérstaklega vel og það sé nú þegar orðið ljóst.

Sumt sem hefur gerst á þessu hausti eru ytri aðstæður. Annað eru afleiðingar af ákvörðunum þessara stjórnvalda, lagabreytinga, skattahækkana og annarra ákvarðana sem teknar hafa verið. En einmitt vegna þess að hluti af þessum áföllum, breytingum, kólnun, neikvæðum áhrifum á efnahagslífið, einmitt kannski vegna þess að það eru ytri aðstæður, þurfa stjórnvöld á hverjum tíma að sjálfsögðu að taka tillit til stöðunnar eins og hún er; ekki eins og stjórnvöld myndu vilja hafa hana, ekki eins og þau töldu hana verða á þessum tíma þegar þau sátu og skrifuðu stjórnarsáttmála, heldur eins og hún er núna og er að teiknast upp.

Meira að segja þegar hæstv. ríkisstjórn var að skrifa stjórnarsáttmála þá fóru þau mikinn og kvörtuðu yfir því að við værum að skilja eftir okkur verra bú en legið hafði fyrir eða sagt hefði verið í fjárlögum, fjármálaáætlun og öðrum pappírum. Svo hefur reyndar komið í ljós síðan þá að ríkissjóður er í sterkari stöðu upp á marga tugi milljarða frá því sem þá var heldur en það sem stóð í pappírum á þeim tíma. Það er nú langt í hina áttina heldur en það sem kvörtunin sagði til um þegar verið var að skrifa stjórnarsáttmála. En veruleiki ríkisstjórna á hverjum tíma er sá að staðan getur breyst hratt. Hlutir gerast og þróunin er ekki á hendi stjórnvalda eingöngu og raunar oftast sem minnst.

Þegar rætt er um það að við höfum hér ekki verið með hallalaus fjárlög, ekki skilað fjárlögum með miklum afgangi undanfarin ár, þá er eiginlega alveg ótrúlegt og ekki mjög stórmannlegt, finnst mér, hvað það virðist fenna meðvitað hratt yfir það sem hefur gengið á í íslensku samfélagi undanfarin ár. Eins og það hafi ekki snúið hlutum á hvolf að spýta inn í hagkerfið í alls kyns formi hundruðum milljarða í gegnum heimsfaraldur. Ytri aðilar, eins Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, hafa tekið út þær aðgerðir og þáverandi stjórnvöld fengu góða einkunn heilt yfir fyrir það sem var gert í efnahagslífinu og einmitt fyrir vinnandi fólk í þessu landi. Það er ekki eins og það hafi ekki kostað neitt að 1% þjóðarinnar hafi þurft að flýja heimili sín og að stjórnvöld og þingið allt saman með fjárveitingarheimildum og fordæmalausri löggjöf hafi ákveðið að við sem samfélag skyldum nota ríkissjóð til að kaupa heimili fólks til þess að það gæti komið sér þaki yfir höfuðið. Menn láta eins og þetta hafi verið einhver smáatriði.

En almennt um það hvernig ríkissjóður er sem sterkastur, hvernig efnahagslífið er sem sterkast, hvernig við stækkum kökuna í þágu samfélagsins alls til að standa undir þeirri velferð sem við viljum geta staðið undir, þá hefur mér þótt sérstakt hvernig hæstv. ráðherrar láta eins og það sé nóg að segja hlutina nógu oft og þá verði þeir þannig. Þegar skattar eru hækkaðir of mikið hefur það letjandi áhrif á fólk sem er að taka áhættu og starfar í einkageiranum og í atvinnulífinu, er með fyrirtæki o.s.frv. Það hefur neikvæð áhrif á nýsköpun. Það dregur úr krafti og mætti hagkerfisins í heild sinni. Það er einfaldlega veruleikinn. Ég átta mig ekki á því hvernig hæstv. ríkisstjórn og stjórnarmeirihlutinn geta með góðu móti sagt — og það virðast engin takmörk fyrir því hvað hægt er að finna mörg nýyrði, sem er svo sem ágætt vitni um líf í íslenskri tungu. Allar hugmyndir að skattahækkunum eru aldrei kallaðar skattahækkanir heldur alltaf eitthvað annað.

Ég veit að það eru ráðherrar í ríkisstjórninni sem er annt um sinn trúverðugleika í efnahagsmálum út frá sinni menntun, fyrri störfum og reynslu. Kannski þess þá heldur skil ég ekki alveg hversu hart menn ganga fram með skattahækkunum sem þeir kalla einhverjum öðrum nöfnum og telja sig, eða alla vega okkur hin og almenning í landinu, trú um það að þetta hafi engin neikvæð áhrif, skili sér allt í kassann og í ríkissjóð og geri ríkisstjórninni kleift að setja meiri fjármuni í önnur verkefni. Það verður ekki þannig. Það er ekki nóg að gera ráð fyrir tekjuauka á pappír út frá breytingum á pappír og halda að það standist. Það er ekki svoleiðis.

Hverjir eru valkostirnir? Valkostirnir eru þá að hækka ekki alla þessa skatta. Valkostirnir eru að miða krónutölugjöldin við 2,5% en ekki 3,7%. Valkosturinn er að taka til, ekki með mynd á Instagram heldur með því að taka til í alvörunni. Með því að hagræða, með því að einfalda efnahagsreikning ríkissjóðs sem er ótrúlega flókinn á Íslandi. Við eigum bara svo mikið af dóti sem ríkið þarf ekki að eiga. Ef við værum hér að ræða þetta í samhengi við einhverjar kerfisbreytingar, aðlögun, tiltekt og nýja tíma og hvað þetta heitir allt, þá væri hægt að taka það inn í stærra samhengi; að við værum raunverulega í tiltekt, við værum að hagræða, við værum að forgangsraða, það væri verið að hætta ákveðnum verkefnum til að sækja fram í öðrum, við værum að lækka skuldir, við værum að fjármagna það sem stjórnvöld vilja fara í fyrir fjármuni sem sitja inni í ríkissjóði með einum eða öðrum hætti á efnahagsreikningi ríkissjóðs.

Þetta segi ég og vil bæta því við að ég mun líklega styðja alla þá tiltekt sem verður lögð til, líka litlu táknrænu málin sem oft eru mikilvæg í pólitískri umræðu og ég kannast við þau mörg frá fyrri árum. Það mun ekki standa á mér að styðja þau verkefni og mörg þeirra sem ég á ekki erfitt með að segja að ég hefði gjarnan viljað að fyrri ríkisstjórn og fyrri ríkisstjórnir hefðu klárað en gerðist ekki. En þetta er ekki neitt í peningum í stóra samhenginu. Þegar ríkisstjórn sem samanstendur af þremur flokkum og þessir flokkar eru með, að því er virðist, nokkuð ólíkar hugmyndir um frekari ríkisútgjöld, og einn kannski umfram hina tvo, þá ef menn ætla að halda trúverðugleika og raunverulega styðja við verkefni Seðlabankans, ef það er raunverulegur vilji til þess að verðbólgan minnki, vextir lækki og að við séum að sýna í verki sem fjárveitingavald og löggjafarvald að við séum meðvituð um það að áföllunum er ekki lokið. Ef fólk er að veðja á það að allt sem hefur gengið á undanfarin ár hljóti að þýða að við verðum í góðum málum hér eftir þá er það mikill misskilningur. Ef fólk er að gera ráð fyrir því þá er það ekki að sjá, hvorki í þessu máli né öðrum því tengdu.

Ég ætla ekki að fara í löngu máli yfir stór verkefni á næstu vikum og mánuðum sem snúa að auknum útgjöldum til varnarmála með beinum og óbeinum hætti til þess að auka viðnámsþrótt; vinna okkar heimavinnu, fjárfesta í því sem við þurfum að fjárfesta, tryggja að við séum fær og ætlum okkur að verja okkur sjálf að því marki sem gerð er krafa um, ýmist af bandamönnum okkar eða okkur sjálfum. Það mun líka kosta. Stjórnvöld eru mjög skammt á veg komin að smíða það, gera ráð fyrir því og svara því hvernig það eigi að fjármagna, forfæra eða gera aðrar breytingar í ríkisfjármálunum. Ég er boðin og búin að vera bandamaður í því vegna þess að ég er á því að þetta sé einhver valkostur fyrir okkur. Þetta er einfaldlega eitthvað sem við þurfum að gera, ekki vegna þess að aðrir eru að segja okkur að gera það heldur vegna þess að staðan er þannig að það er orðið mjög mikilvægt að drífa í því.

Í stærri mynd finnst mér mikilvægt að hvar sem við stöndum, hvort sem við erum í meiri hluta eða minni hluta, eða í hvaða flokki sem við erum í á þinginu, þá er það bara sanngjarnt og heiðarlegt gagnvart fólki í þessu landi að við sýnum það með okkar vinnubrögðum hér og hvernig við afgreiðum mál að við séum meðvituð um það að frelsi mun kosta meira á næstu misserum og árum. Það eru meiri líkur en minni á að það verði frekari áföll í kringum okkur sem muni hafa bein áhrif á okkur hér. Það getur verið í formi veikari markaða erlendis sem hafa áhrif á ferðaþjónustu, áhrif á söluandvirði sjávarafurða o.s.frv. Það geta líka verið atriði sem geta haft áhrif á aðfangakeðju okkar sem við erum rosalega háð.

Við hér, þjóð sem telur ekki 400.000 manns og er eins útflutningsdrifin og við erum, verðum einfaldlega að haga okkar málum hér þannig að við séum meðvituð um það sem er að gerast í kringum okkur. Þar af leiðandi þurfi ríkisfjármálin að vera sérstaklega ábyrg þannig að við getum tekist á við það ef fleiri áföll dynja yfir. Það er almennt skynsamlegt að gera það en það er mikilvægt að gera það núna vegna þess hvernig málin eru að teiknast upp. Jafnvel ef það sem ég hér nefndi myndi ekki gerast þá eru bara augljós mjög vaxandi útgjöld til öryggis- og varnarmála sem blasa við okkur og það á eftir að teikna upp með hvaða hætti þau eiga heima inni í lögum um opinber fjármál, ríkisfjármálunum, í hvaða skrefum á að gera það og sömuleiðis hvernig á að fjármagna þau.

Ég sakna tiltektar. Ég sakna hagræðingar. Ég sakna kerfisbreytinga sem fela ekki eingöngu í sér aukin útgjöld heldur frekar minni útgjöld einmitt þá kannski til að fjármagna frekar auknu útgjöldin. Ég sakna þess að menn viðurkenni þá viðurkenndu staðreynd að þegar gengið er of langt í að hækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki þá hefur það neikvæðar afleiðingar sem á endanum þýða að krónurnar skila sér ekki allar í ríkissjóð og það dregur úr mætti atvinnulífsins og hagkerfisins. Þar af leiðandi er það ekki góð nálgun eða góðar ákvarðanir — sérstaklega ekki þegar menn geta sagt sér að verið sé að ganga langt. Menn geta sagt sér þegar það er ekki búið að vinna málin nægilega vel, gögnin eru ekki til staðar eða gögnin standast ekki, fyrirsjáanleikinn er lítill eða fyrirvarinn er allt of lítill. Þegar hlutirnir líta út fyrir að vera of auðveldir til að geta staðist þá er það vegna þess að það er oftast rétt. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )