breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Það var áhugavert að hlusta á hv. þingmann því að þarna fer þingmaður sem talar af mikilli reynslu í gegnum árin, bæði sem þingmaður og sem hæstv. ráðherra. Það vöknuðu margar spurningar við ræðu hv. þingmanns og ég held að ég komi þeim ekki öllum að á þeim stutta tíma sem ég hef. En fyrsta spurningin snýr að því: Hvernig eigum við að vaxa út? Hvernig eigum við að vaxa út úr þeim mótbyr sem nú er í samfélaginu? Það er minnkandi hagvöxtur og ýmsar ógnanir sem eru fram undan, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, sem snýr fyrst og fremst að stöðunni sem er nálægt okkur, talandi um stríð í Úkraínu og þann óróa sem er mjög víða.
Í sinni ráðherratíð var hv. þingmaður ráðherra nýsköpunar. Einn hluti af því að mínu viti er að vaxa út, þ.e. að reyna að skapa eitthvað og efla tækifærin. Það sem við horfum á núna í þessari umræðu sem við eigum hér snýr að þessum bandormi, sem snýr fyrst og fremst að aukinni skattpíningu á almenning. Mig langar að velta því upp við hv. þingmann hvort að sú leið sem snýr að nýsköpun skapi eitthvað og hvort það sé ekki sú leið sem við þurfum að fara til að vaxa út úr þeim mótbyr sem við stöndum í núna.