breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar í þessu andsvari. Ég myndi segja að í fyrsta lagi er það alltaf mikilvægt, en sérstaklega þegar það kólnar í hagkerfinu og grípa þarf til ráðstafana. Við verðum auðvitað að stuðla að því að tryggja samkeppnishæfni íslenskra atvinnugreina í samkeppni við sömu atvinnugreinar annars staðar og tryggja einfaldlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs almennt. Það liggja fyrir gögn, skýrslur og tillögur um einföldun regluverks, um alls konar hagræðingartillögur, bæði frá gamalli tíð og auðvitað þúsundir í átaki núverandi ríkisstjórnar í að kalla eftir hugmyndum frá almenningi. Svo eru auðvitað til alls konar góðar hugmyndir inni í ráðuneytum, stofnunum, fyrirtækjum, hagsmunasamtökum og kerfinu öllu.
Þetta eru ekki geimvísindi. Við vitum alveg hvað það er sem væri mjög skynsamlegt og gagnlegt að gera. Aftur segi ég að ég á ekki erfitt með að viðurkenna það að það er mjög margt sem ég hefði mjög gjarnan viljað gera þegar ég sat sjálf í hæstv. ríkisstjórn á þeim tíma. Þess vegna vona ég að þessi ríkisstjórn hafi pólitískan vilja, kjark og hugrekki til þess að gera það, einfalda ríkisreksturinn og forgangsraða, vegna þess að af nógu er að taka í þeim verkefnum sem ríkið sinnir og enginn annar. Það er nú aldeilis að sjá meira að segja í umræðu núna um fjárlögin, hvort sem það er löggæslan eða Landspítalinn eða hvaðeina annað. Við eigum nóg með það sem ríkið sinnir og enginn annar. Það væri bara mjög gagnlegt að við einbeittum okkur að því. Síðan þurfum við sannarlega að einblína á nýsköpun á öllum sviðum með því að vera ekki fyrir, (Forseti hringir.) vera með rétta hvata og heilbrigt umhverfi í þágu nýsköpunar sem okkur tókst að byggja upp. Þar er um að ræða algerlega ótakmarkaða auðlind (Forseti hringir.) sem þýðir að við getum byggt upp og sótt fram endalaust.