157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:51]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mig langar að halda áfram á svipuðum slóðum. Nú er það þannig að fyrir tæplega ári síðan kallaði hæstv. ríkisstjórn eftir hagræðingartillögum frá almenningi. Ég held að það hafi borist um 10.000 tillögur um hvernig væri hægt að hagræða í ríkisrekstri. Ég hef ekki orðið var við að þær blasi við okkur í þeim fjárlögum sem rætt er um núna. Hv. þingmaður kom inn á það í fyrra andsvari þess efnis hvernig við getum hagrætt í rekstri. Hæstv. ríkisstjórn er algjörlega fyrirmunað að fara þá leið að hagræða, heldur er frekar bætt í útgjöld og til að standast stöðugleikareglu sem hæstv. ríkisstjórn kom á þarf að finna tekjur á móti. Mín tilfinning er sú, eftir að hafa hlustað á umræður í fjárlögum og tengdum málum, að í bandormi sé fyrst og fremst verið að horfa til þess að það sé hálfpartinn verið að prenta peninga. Það er verið að finna fjármuni til þess að standa á móti þeim útgjöldum sem búið er að boða í fjárlagafrumvarpinu. Mig langar að beina því til hv. þingmanns hvort hann geti tekið undir með mér hvað það varðar að hér sé verið í öllum þeim skattatillögum sem liggja fyrir, og þær eru fjölmargar — getum við ekki bara horft á það á einfaldan hátt, að við séum að horfa á ákveðna peningaprentun til þess að standast þau útgjöld sem er búið að leggja á borðið nú þegar?