157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:53]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg klárt í mínum huga að loforð stjórnarflokkanna, ýmist fyrir kosningar eða við gerð stjórnarsáttmálans um aukin útgjöld og svo loforð um að hækka ekki skatta, um hagræðingu og tiltekt, eru að þvælast fyrir hópnum. Ég er ekki að láta eins og ég kannist ekki við það sjálf. Ég þekki það mætavel að það er hluti af því að sitja í ríkisstjórn og vera hluti af stjórnarmeirihluta. Það voru allra handa málamiðlanir í þau átta ár sem ég sat í ríkisstjórn mjög ólíkra flokka. Hins vegar verður að gera kröfu og það er eðlileg krafa á ríkjandi stjórnvöld að þau segi einfaldlega það sem þau eru að meina og meini það sem þau segja. Ef það er verið að leggja til mikil ný útgjöld til að uppfylla kosningaloforð ákveðins hóps í ríkisstjórninni þá þurfa þau sem vilja ekki sjá aukin ríkisútgjöld með óábyrgum hætti, og vilja heldur ekki í orði hækka skatta á vinnandi fólk, venjulegt fólk, þá ættu þau sömu að gera kröfu um að það sé fjármagnað með til að mynda hagræðingu. En þegar maður horfir yfir bæði þau stjórnarfrumvörp sem koma frá hæstv. ráðherra og svo álit meiri hlutans (Forseti hringir.) þá er verið að ganga langt í auknum útgjöldum og hækkun skatta en minna í kerfisbreytingum í formi hagræðingar eða raunverulegrar tiltektar.