157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[20:55]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Það er þungt að stíga í þennan ræðustól núna. Ég var hér í fundarstjórn forseta áðan og leitaði þar ásjár forseta við að lygar sem settar eru fram á netinu verði leiðréttar. Ég verð líklega að endurtaka þann leik því að ég sótti mér aðeins fræðslu og ég mun víst hafa orðað hlutina þannig að það sé afar ólíklegt að forseti finni sig knúinn til að gera eitthvað í málinu þannig að hann má eiga von á mér aftur í ræðu undir liðnum fundarstjórn forseta áður en langt um líður.

Við stöndum hér og fjöllum um skattorminn á sama tíma og við erum nýbúnir að halda ræður í öðru máli, þá er ekki bara beygt það sem var sagt eða túlkað með frjálslegum hætti, það er hreinlega logið, þannig að ég boða komu mína hér í fundarstjórn forseta innan skamms, frú forseti.

Það er af fleiri ástæðum þungt að standa í pontunni núna. Við vorum hér fyrir ekki svo löngu síðan, nú man ég ekki nákvæmlega hvað klukkan var þegar atkvæðagreiðslu lauk, að greiða atkvæði milli 2. og 3. umræðu um kílómetragjaldið. Það er svo erfitt, frú forseti, að reyna að átta sig á hvernig ríkisstjórn væntanlega einhvers konar jafnaðarmennsku, ímynda ég mér, miðað við að það er hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir sem leiðir þessa stjórn — að það sé hægt að fara í allar þessar skattahækkanir. Það sem við vorum að greiða atkvæði um áðan, kílómetraskatturinn, er aðeins einn hluti af því að taka, ég ætla ekki að segja ekki neinum leiðbeiningum því að vissulega voru agnarsmáar örlitlar leiðréttingar gerðar á tiltölulega mjög afmörkuðum þáttum í frumvarpinu en umsagnabunkinn sem lá fyrir í málinu og það hversu einhliða hann var í raun í að vara ríkisstjórnina við og leggjast jafnvel hart gegn því að þetta yrði gert á þessum hraða eða með þessum hætti — það var í engu hlustað.

Mig langar, með leyfi forseta, að grípa hér niður í Facebook-færslu frá Jóhannesi Þór Skúlasyni þar sem hann kýs að orða það svo, með leyfi forseta:

„Enginn hefur hrakið þessi gögn. Þeim hefur meira að segja varla verið andmælt að ráði.“

Þarna tekst Jóhannesi Þór Skúlasyni að kjarna mikla umræðu og niðurstöðuna í afgreiðslu milli 2. og 3. umræðu í tveimur setningum, að ríkisstjórnin skuli sýna slíkan hroka gagnvart þessu mikla magni gagna sem benda til þess að það sé ekki skynsamlegt að gera það með þessum hætti og á þessum hraða, öllum þeim röksemdafærslum sem komu fram í málflutningi þingmanna hér sem tilheyra minni hlutanum. Það er hreint með ólíkindum að þetta skuli ekki hafa haft nein áhrif. En auðvitað er þetta ekki orðið að lögum, 3. umræða er eftir, svoleiðis að lengi má manninn reyna.

Ég hyggst svo fara betur í aðrar skattahækkanir sem tilheyra skattorminum í öðrum ræðum hér, en aðeins í ljósi þess að þetta skuli hafa farið í gegnum þessa atkvæðagreiðslu með þessum hætti sem hér gerðist í dag þá kemur óneitanlega upp í hugann hugtakið sleggjan. Eins og ég hef nefnt hérna að ég held einu sinni áður í einhverri ræðu: Staðreyndin er að hún er að virka, bara ekki með þeim hætti sem hæstv. forsætisráðherra lofaði. Hún er að virka á þann hátt að hún er að berja niður verðmætasköpun í landinu. Hún er að gera fólki erfiðara fyrir, heimilunum erfiðara fyrir, fyrirtækjunum erfiðara fyrir, bæði alls konar jarðverktökum, bílaleigum og svo mætti áfram lengi telja.

Eins og ég sagði áðan, frú forseti, þá er von á mér hérna aftur í fundarstjórn forseta innan skamms (Forseti hringir.) þar sem ég ætla að reyna að hafa orðavalið þannig, frú forseti, að það verði ekki hægt að komast hjá því að bregðast við þeim lygum (Forseti hringir.) sem eru að birtast á síðum einstakra þingmanna Flokks fólksins og einnig á síðu Flokks fólksins sjálfs.