breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Við ræðum enn miklar og fjölbreyttar og íþyngjandi skattahækkanir hæstv. ríkisstjórnar sem kemur sér ekki saman um að hemja útgjaldavöxtinn. Allar eru þær réttlættar, þessar skattahækkanir, með því að þetta eigi að fara í að gera betri vegi; að þetta sé til þess að stoppa niðurbrotið í vegakerfinu og bæta innviðaskuldina. Nú hefur hæstv. ríkisstjórn sýnt okkur fjármálaáætlunina sína. Við erum búin að fjalla hér um fyrsta fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar og við erum búin að sjá á spilin í gegnum samgönguáætlun. Þar kemur glöggt í ljós, virðulegi forseti, að ekki stendur steinn yfir steini í því sem þessi ríkisstjórn hefur sagt. Það fer ekki ein króna af kílómetragjöldunum í vegina. Það fer ekki ein króna af vörugjöldunum í vegina, ekki ein króna. Það eina sem þessi ríkisstjórn gerir er að fresta framkvæmdum, fresta samgönguframkvæmdum. Hún stærir sig af samgönguframkvæmdum sem síðasta ríkisstjórn setti á fót og seinkar öllum öðrum. Það er hægt að segja að peningur komi fyrr í Fljótagöng sem ég fagna; það er mikilvægt að fá pening í Fljótagöngin. Það kostaði það að öllu öðru var frestað og kláraðir þeir vegir sem voru komnir á dagskrá eða komnir af stað. Það er samdráttur í höfnunum, það er samdráttur í almenningssamgöngum, það er alls staðar samdráttur nema í einstaka framkvæmdum í kjördæmi hæstv. innviðaráðherra. Það verður að segjast eins og er að það er illa gert að skapa þessar væntingar um að það eigi að setja alla innviði af stað, rökstyðja svo hverja skattahækkunina á fætur annarri með því að það eigi að fara í vegina, en svo eru hvergi í gögnum hér í þinginu merki um að það fari króna í vegina, ekki ein króna. Það eina sem hefur staðist hjá ríkisstjórninni er það að áætlaðar tekjur af veiðigjaldinu upp á 7 milljarða fari í samgöngumál. Það má sjá þess merki hér í fjárlagafrumvarpinu að gert er ráð fyrir auknum útgjöldum á milli ára upp á 7 milljarða í samgöngum, það sama og veiðigjöldin áttu að skila. Það er kannski ekki til þeirra byggðarlaga sem urðu verst úti varðandi hækkun veiðigjaldsins, en það er annað mál. En þessir 7 milljarðar fara vissulega í viðhald vega og upp í rekstrarhallann á vetrarþjónustunni, eða þjónustu vega. Meira er ekki að sjá, meira er hvergi að sjá. Þetta er algjör aðför að atvinnulífinu í landinu, að fjölskyldunum í landinu. Ekki síst hvað varðar íþróttalífið og landsbyggðina, byggðastefnuna, þá er þetta vanhugsað. Það er ekki ein umsögn sem mælir með þessum breytingum, hvorki vörugjöldunum í þessum skattormi eða kílómetragjöldunum. Það er enginn að mæla með því sem ríkisstjórnin leggur til í þessu frumvarpi. Þvert á móti heyrist hvert aðvörunarorðið á fætur öðru en á það er ekkert hlustað. Í gamla daga var sagt: Maður pissar ekki eftir á, það gæti endað illa. Þannig komu sjómennirnir blautir í land. — Þessi ríkisstjórn mun pissa í skóinn sinn.