breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég kveð mér hér hljóðs í minni annarri ræðu um hinn svokallaða skattorm ríkisstjórnarinnar. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni hér undanfarna daga. Það er sömuleiðis áhugavert að fylgjast með því og hafa reynt að fara í gegnum þetta flókna mál og sömuleiðis nefndarálit meiri hlutans sem hefur vissulega tekið ákveðnum breytingum í meðförum nefndarinnar. En þetta mál snertir ekki aðeins fjárlög ríkisins heldur er þetta grundvallarspurning um ákveðna sanngirni, aðgengi, jöfnuð og ábyrgð stjórnvalda gagnvart almenningi og atvinnulífi. Hér er það lagt á borð fyrir okkur að meiri hlutinn eða þingheimur eigi að samþykkja umfangsmiklar skatta- og gjaldabreytingar sem eru settar fram sem tæknilegar eða sjálfvirkar verðlagsleiðréttingar. En þegar nánar er skoðað kemur í ljós að hér er um raunverulegar byrðar að ræða sem lenda fyrst og fremst á heimilum landsins, námsmönnum t.d., smærri fyrirtækjum og þeim sem minnst mega sín.
Eitt af meginmarkmiðum frumvarpsins er að hækka svokallaða krónutöluskatta um 3,7%. Þetta er réttlætt með verðlagsforsendum fjárlaga en við skulum alveg vera með það á hreinu, virðulegi forseti, að þetta er ekki hlutlaus tæknileg uppfærsla. Þetta er pólitísk ákvörðun um að hækka skatta umfram yfirlýst markmið um stöðugleika sem við köllum með öðrum orðum hófsemi og vernd kaupmáttar. Þegar skattar hækka sjálfkrafa í takt við verðbólgu eða jafnvel umfram hana án þess að tekjuþróun heimila sé skoðuð sérstaklega eru byrðarnar fluttar yfir á almenning. Þetta bitnar harðast á tekjulægri hópum sem verja stærri hluta ráðstöfunartekna sinna í nauðsynjar. Þeir sem finna mest fyrir hverri krónu sem bætist við gjöld og skatta eru þeir sem minnst hafa á milli handanna. Það er nú einu sinni þannig. Meiri hluti nefndarinnar bendir á að hækkunin sé í samræmi við forsendur fjárlaga. Fyrir mér er það ekki nægileg skýring. Spurningin er ekki hvort hækkunin passi. Spurningin er þessi, hvort hún bara passi ekki inn í bókhald ríkisstjórnarinnar um þessar mundir en það er ekkert verið að velta því fyrir sér hvort hún sé réttlát, skynsamleg eða samfélagslega ábyrg.
Ég ætla aðeins að staldra hér við og koma að skrásetningargjaldi sem snýr að opinberum háskólum sem er verið að hækka úr 75 þús. kr. í 100 þús. kr. Þetta er 33% hækkun og þrátt fyrir að þetta sé kallað gjald en ekki skólagjöld þá vitum við öll að áhrifin eru þau sömu. Það gerir það að verkum að aðgangurinn verður erfiðari fyrir suma hópa samfélagsins. Það kemur skýrt fram í þeim umsögnum sem komu fram við málið að þessi hækkun mun bitna sérstaklega á tekjulágum námsmönnum, fólki með fötlun og þeim sem hafa ekki bakland til að styðjast við. Það er ekki hlutverk ríkisins að gera menntun að forréttindum þeirra sem hafa efni á því. Það er þá eitthvað nýtt sem hefur algjörlega farið fram hjá mér og er ekki í takt við það sem sumir af stjórnarflokkunum hafa talað um hér undanfarið sem snýr að því hvernig við styðjum við bakið á þeim sem minna mega sín. En það virðist algerlega gleymast í öllu þessu skattaflóði sem hér er boðað, í þeim skattormi sem við ræðum hérna.
Ein af lykilatvinnugreinum okkar er ferðaþjónustan. Það er nú heldur betur hoggið í hana í þessu frumvarpi sem og í frumvarpi sem var til afgreiðslu í dag sem snýr að kílómetragjaldi. Því miður er það nú þannig að þegar við erum að fjalla um ferðaþjónustuna þá er það atvinnugrein sem þarf mikinn fyrirsjáanleika. Hún þarf ákveðnar reglur til að starfa eftir og fyrst og fremst þurfum við að horfa til þess að við séum með sanngjarna gjaldtöku og að gjaldtakan taki mið af raunverulegum kostnaði og samkeppnisstöðu landsins. Allar óstöðugar, tímabundnar og illa rökstuddar breytingar skapa óvissu. Þær draga úr fjárfestingum og draga úr trausti sömuleiðis. Við getum líka fjallað um vörugjöldin. Þau bitna nú heldur betur á ferðaþjónustunni, sömuleiðis skattlagning ökutækja. Með þeim breytingum sem verið er að boða og hafa verið hér til umræðu er verið að flækja kerfið og sömuleiðis þá held ég því miður, virðulegi forseti, að við séum á ákveðinni leið sem við eigum eftir að sjá eftir. Við vöruðum við því í dag í afgreiðslu um kílómetragjald. Við vöruðum við því að þau stjórnvöld sem sá sem hér stendur tilheyrir, fyrrverandi stjórnvöld, gerðu ákveðin mistök sem snúa að innviðagjaldi á skemmtiferðaskip. Við sjáum það alveg, við sem vorum þá við stjórnvölinn, að við gerðum mistök og við viðurkennum þau mistök. En því miður, þrátt fyrir allt, þá er ekki hlustað á þau varúðarorð sem við höfum haldið hér uppi og komið með hér í ræðustól Alþingis. Því miður er verið að fara mjög svipaða leið og var farin með innviðagjald á skemmtiferðaskip, haldið áfram með bundið fyrir bæði augun. Síðan kemur að því að við eigum eftir að rekast á vegg og það er alveg ljóst, varðandi þær breytingar sem verið er að boða hér, að við eigum eftir að keyra mjög hraustlega á vegg. Því miður erum við ekki að hlusta á varúðarorð atvinnugreinarinnar, ferðaþjónustunnar í þessu tilfelli, heldur er vaðið áfram og sagt: Heyrðu, þetta verður ekkert mál, þið breytið bara kerfunum ykkar 1. janúar 2026. Fyrirsjáanleikinn er enginn.
Virðulegur forseti. Skattkerfi er ekki aðeins tæki til að afla tekna. Það er spegill á þau gildi sem samfélagið stendur fyrir. Þegar við samþykkjum skattahækkanir sem leggjast hlutfallslega þyngst á þá sem minnst hafa erum við að flækja kerfið í stað þess að einfalda það. Við erum sömuleiðis að senda ákveðin skilaboð sem draga úr trausti á stjórnvöld. Þegar starfsskilyrðum mikilvægra atvinnugreina er stefnt í ákveðið uppnám með lagabreytingum sem fram fara hér þá er ekki vel komið fyrir okkur.
Virðulegi forseti. Ég óska eftir því að verða settur í aðra ræðu því að ég er rétt að fara af stað hér í þessari umræðu.