157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:17]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans yfirferð á þessum skattormi, sem var góð. Það var einn punktur sem hv. framsóknarmaður, Þórarinn Ingi Pétursson, kom inn á, sem er svolítið mikilvægur í þessu öllu saman. Þetta eru svo margar skattahækkanir hingað og þangað og ég áttaði mig á því þegar ég hlustaði á hv. þingmann að þetta eru ekki almennir skattar heldur einmitt vörugjöld, kílómetragjöld, skrásetningargjöld í skóla og allt það. Ekkert af þessu tekur mið af tekjum fólks, ekki neitt, þannig að að sjálfsögðu koma þessar gjaldahækkanir, 3,7%, gjaldahækkanir á öllu, allir þeir skattar sem hæstv. ríkisstjórn setur á, hlutfallslega langverst við þá sem minnst hafa milli handanna því þetta eru allt einhvers konar neysluskattar sem tengjast ekki beint þeim tekjum, tekjutengingarkerfum og frítekjumörkum og öðru slíku, sem við höfum. Ég hef því miklar áhyggjur af því, þegar það koma svona margar skattahækkanir í röð sem allar leggjast hlutfallslega verst á þá sem minnst hafa á milli handanna, hvar þetta endar.