157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:19]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sínar hugleiðingar hér. Það voru svo sem ekki beinar spurningar en ég skil hvert hv. þingmaður er að fara. Það er akkúrat það sem ég held, að verið er að pota eiginlega alls staðar, verið að pota og tosa sitt á hvað alls staðar í samfélaginu, til þess eins að láta bókhaldið ganga upp. Stöðugleikaregla hefur verið hér til umræðu töluvert alveg frá því í haust. Markmiðið gengur út á það að láta bókhaldið ganga upp, þ.e. hvernig bókhaldið lítur út. Til að geta gert það þarf að fara í alla kima og taka meiri skatta af almenningi hingað og þangað og vitanlega bitnar það mest á þeim sem minnst hafa. Það er alveg ljóst, sérstaklega þegar t.d. er verið að tala um hækkun á skólagjöldum, hækkun á almennum gjöldum upp í 3,7%. Í stað þess að fara þá leið að skera niður í útgjöldum ríkisins á móti, draga úr úthlutun ríkisins, þá er þessi leið farin. Ég held að það sé mjög mikilvægt þegar við erum að horfa á ríkisreikning í heild sinni að líta til þess hvernig við sjáum þetta fyrir okkur, hvernig framhaldið verður. Ég átti hér orðastað við hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur rétt áðan og þá held ég að það sé skynsamlegast hverju sinni að reyna að vaxa, þ.e. að auka tekjur, auka nýsköpun.