157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:21]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er einmitt þangað sem mig langaði að taka síðara andsvar við hv. þingmann, hvernig t.d. vaxandi atvinnugrein eins og ferðaþjónustan hefur verið að hjálpa okkur að vaxa út úr þeim vanda sem við höfum búið við hringinn í kringum landið í langan tíma þar sem var bara samdráttur, störfum um landið fækkaði og íbúunum fækkaði. Það náðist að hægja á og jafnvel snúa þeirri þróun við á mörgum stöðum með öflugri ferðaþjónustu. Það eru oft minni ferðaþjónustufyrirtækin hringinn í kringum landið sem hafa verið fóðurbætir fyrir landsbyggðina, en allar þessar skattahækkanir hljóta líka að koma verst við minni fyrirtæki sem geta síður varið sig fyrir vörugjöldunum með því að kaupa bílana núna fyrir áramót og annað slíkt. Minni ferðaþjónustufyrirtækin fá því minni fóðurbæti og hvað gerist ef kýrin fær minni fóðurbæti, virðulegur bóndi?