157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:22]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka annað andsvar hv. þingmanns. Það er einu sinni þannig þegar talað er um fóðurbæti, og hv. þingmaður blandaði því inn í að mitt starf hefur í gegnum tíðina verið að framleiða mat sem bóndi, að þegar þú skerð fóðrið niður þá mjólkar kýrin minna. Við sjáum það alveg og það hefur verið varað við því að það sem gerist varðandi þessi auknu gjöld og breytingar á starfsskilyrðum ferðaþjónustunnar muni klárlega bitna á ferðaþjónustunni og þeim ferðaþjónustufyrirtækjum sem lengst eru frá Reykjavík. Það er alveg klárt mál. Ferðaþjónustan sjálf hefur varað við því og segir: Ferðamenn fara bara til Víkur og síðan stoppa þeir eða þá upp í Borgarnes og þeir fara ekki lengra.