breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið í mörgum ræðum er hér á ferðinni ríkisstjórn sem ætlar ekki að hlusta á varnaðarorð. Það er alveg sama hvort það er frá atvinnulífinu, verkalýðshreyfingunni eða öðrum félagasamtökum, það er alveg sama hver reynir að vara þessa hæstv. ríkisstjórn við, hún skellir við skollaeyrum og ætlar bara að keyra fullan hreyfil áfram og hækka hér skatta og gjöld á atvinnulífið í landinu svo um munar, svo ekki sé talað um heimilin í landinu sem eru að fara að taka á sig ríkulegan skell, ríkulega jólagjöf. Ætli það verði ekki einn stærsti jólabónusinn í ár, verðbólguhækkunin, því að lán heimilanna í landinu eru að hækka um 20 milljarða út af öllum þessum aðgerðum.
En mig langar að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson um áhrifin á bændur. Ég veit að í vörugjöldunum er komin inn undanþága hvað varðar traktora en það er nú margt mikið og meira en vörugjöldin, kílómetragjöldin og í rauninni öll þessi áhrif — hvort hann gæti aðeins farið yfir það hver áhrifin eru almennt á bændur og jafnvel bændur í ferðaþjónustu og fleira.