breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður veltir því upp hér hver áhrifin verða á bændur. Blessunarlega var nú hlustað og tekið tillit til bænda og ökutækja bænda, dráttarvéla, fjórhjóla og sexhjóla í kílómetragjaldinu. Ökutæki sem hljóta landbúnaðarskráningu verða því undanþegin kílómetragjaldi. Það er svo sem ágætt. En við skulum bara horfa á bændur sem almenning. Bændur eru bara almenningur þótt þeir séu í ákveðnum rekstri og þá er það þannig að allar krónutöluhækkanir hafa ákveðin áhrif á alla, alveg sama hverjir það eru. Það á við um bændur sem og annað fólk, verkafólk, fólk sem vinnur í háskólum eða stórum fyrirtækjum. Þetta hefur allt áhrif, jöfn áhrif. Nú erum við ekki komin til enda hvað varðar umræðu um vörugjöld en það sem snýr að bændum fyrst og fremst eru náttúrlega þessi innkaup á þessum stærri bílum, pallbílum til flutninga. Það hefur í gegnum tíðina verið mjög algengt að bændur hafa verið á stærri pallbílum eins og þessum amerísku. Þeir bílar eru að hækka gríðarlega í verði miðað við þær breytingar sem eru á vörugjöldum. Til dæmis er það þannig að þekkt fyrirtæki hér á Selfossi, IB, er nýbúið að afgreiða 50 bíla og það eru 60 bílar á biðlista.