157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:28]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans fyrra andsvar. Það er alveg rétt, sem hv. þingmaður segir, að bændur eru náttúrlega bara almenningur í þessu landi, eru með sinn búrekstur. En margir bændur hafa haft það sem aukabúgrein að vera með ferðaþjónustu til hliðar. Nú hefur það svo sem ekki farið fram hjá neinum að borist hafa umsagnir frá bílaleigunum, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum atvinnulífsins, Bílgreinasambandinu, og svona get ég haldið endalaust áfram, um áhrifin af þessum vörugjöldum og annað. Svo er bara verið að hækka skatta og álögur og annað hér og þar. Þetta mun líka hafa áhrif á bændur sem eru jafnvel búnir að skuldsetja sig til að byggja upp einhvers konar ferðaþjónustu en horfa jafnvel fram á samdrátt í tekjum. Hvaða áhrif telur hv. þingmaður að þetta geti haft á þá bændur, ef við horfum sérstaklega til bænda í ferðaþjónustu, sem eru í þessum dreifðari byggðum lengra frá höfuðborgarsvæðinu?