157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:30]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt annað andsvar. Ferðaþjónusta bænda — þetta er áhugaverður vinkill sem hv. þingmaður kemur inn á. Sá vöxtur sem hefur verið undanfarinn áratug í ferðaþjónustu er merkilegur hvað það varðar að ferðaþjónustan hefur tekið við vegna þeirra breytinga sem hafa orðið til sveita þar sem hinn hefðbundni atvinnuvegur, landbúnaður, hefur gefið eftir. Það er ekki jákvæð þróun hvað landbúnaðinn varðar en það er jákvætt sem snýr að ferðaþjónustunni. Það er alveg ljóst að þær breytingar sem verið er að boða hér munu hafa neikvæð áhrif á ferðaþjónustu vegna þess að það sem verið er að boða kemur til með að draga úr dreifingu ferðamanna vítt og breitt um landið.