breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðisræðu. Mig langaði rétt að koma dýpra inn í þetta með ferðaþjónustuna á landsbyggðinni og raunverulega það lykilhlutverk sem bílaleigubílar gegna í dreifingu ferðamanna, að skapa forsendur fyrir ferðaþjónustu vítt og breitt og sérstaklega fyrir minni aðila í ferðaþjónustu, oft til sveita. Aðilar sem eru kannski með þrjú, fjögur, fimm herbergi og lítið sumarhús fyrir utan — þessir aðilar treysta fyrst og fremst á bílaleigubíla, á ferðamenn sem keyra um á bílaleigubílum. Það er þetta atriði sem ég held að sé verið að vanmeta gríðarlega með því að fara svona hart í bílaleigurnar í gegnum það sem við erum að fást við í þinginu og höfum verið að ræða síðustu daga, sérstaklega á þeim svæðum sem standa fjærst höfuðborgarsvæðinu eins og í Norðausturkjördæmi og norðurhluta landsins, Norðurlandi vestra líka, Vestfjörðum, þar sem þetta er lykilatriði, þessi dreifileið. Sá sem hér stendur telur að þetta verði raunverulega miklu alvarlegri hlutur en við getum ímyndað okkur á þessum tímapunkti.
Sá sem hér stendur talaði hér í fyrra gegn innviðagjöldum, gegn því að hækka þau. Ég held að þetta geti orðið enn þá stærra mál í því samhengi og klárlega þó við tækjum bara rekstrareininguna sem er bílaleigur í landinu; við erum að sjá hvaða kostnaður mun falla á þær á næstu mánuðum. Það verður gríðarlegt reiðarslag fyrir þessi fyrirtæki. Hlutfallslega mun þetta hafa miklu alvarlegri áhrif á landsbyggðina en Reykjavík þar sem ferðaþjónustan hér er ekki eins háð þessu samgönguformi.