157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:33]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni hugleiðingarnar og sömuleiðis þær vangaveltur sem hv. þingmaður setur hér fram varðandi áhrif á ferðaþjónustuna vítt og breitt um landið varðandi þær hækkanir sem fram undan eru á bílaleigubíla. Bara vörugjaldahækkunin á bílaleigubíla getur þýtt það að þeir hækki um 20–25% í verði og væntanlega skilar það sér í framhaldinu út í hærra verði til viðskiptavinarins. Það sama á við um breytingar sem verða á kílómetragjaldinu og það er akkúrat það sem ferðaþjónustan hefur verið að vara við. Við getum því alveg horft fram á það, frú forseti, að ferðamenn keyri frá höfuðborgarsvæðinu í áttina að Vík og ekki lengra. Keyri frá Reykjavík í Búðardal og ekki lengra. Þá sitja eftir Austfirðir og Vestfirðir, Norðurland vestra og við verðum svo sem að hafa í huga að það er sem betur fer beint flug á Egilsstaði og til Akureyrar og einhverjir koma nú þangað. Við hv. þingmaður, sem deilir með mér Norðausturkjördæmi, áttum einu sinni leið frá Akureyri til Egilsstaða. Á þeirri leið, í október, mættum við 50 hvítum Duster-um. Hv. þingmaður man örugglega vel eftir þessu en það sem ég óttast er að þegar ég og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson verðum næst á ferð frá Akureyri til Egilsstaða þá komum við ekki til með að mæta 50 hvítum Duster-um.